Grín og glens
+2
Anna M nr 165
Ægir og Sigga
6 posters
Spjall :: Húsbílar :: Grín & Glens
Blaðsíða 8 af 19
Blaðsíða 8 af 19 • 1 ... 5 ... 7, 8, 9 ... 13 ... 19
Fljúgandi diskar !!
Ég bauð konunni og kunningjahjónum á veitingastað í gærkvöldi , og þá sáum við fljúgandi diska svífa um loftið . Nei, það getur ekki verið .. Alveg satt, ég brá fæti fyrir þjóninn !!
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Elskar vindla !!
Churchill var mikið elskur að vindlum. Eitt sinn þegar hann var á ferð í smábæ einum heilsaði hann uppá íbúana. Hann tók ungan mann tali og spurði. Ertu giftur? , já svaraði ungi maðurinn, ég hef verið giftur í þrjú ár.
Gott sagði Churchill, þú átt kannske börn líka ? Já ég á fimm börn sagði ungi maðurinn.
Það er svakalegt sagði Churchill, já það er það sagði ungi maðurinn, en ég elska konuna mína svona mikið.
Já ég er líka svakalega hrifin af vindlunum mínum sagði Churchill, en ég tek þá stundum útúr mér
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Gott sagði Churchill, þú átt kannske börn líka ? Já ég á fimm börn sagði ungi maðurinn.
Það er svakalegt sagði Churchill, já það er það sagði ungi maðurinn, en ég elska konuna mína svona mikið.
Já ég er líka svakalega hrifin af vindlunum mínum sagði Churchill, en ég tek þá stundum útúr mér
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Sveitamaðaurinn !!
Pétur gamli hafði búið í sveitinni allt sitt líf, og nú var hann kominn til Reykjavíkur í fyrsta sinn .
Hann stóð fyrri utan hús í miðbænum og á hurðinni stóð " Ýtið á hnappinn" . Pétur gerði eins og fyrir var lagt og ýtti á hnappinn , og það var eins og við manninn mælt, maður kom til dyra með hátíðlegan svip. Hvað er þér á höndum maður minn spurði hann . Ekkert , ekki neitt, sagði Pétur ég gerði bara eins og stóð á skiltinu á hurðinni .
Maðurinn horfði rannsakandi á gamla manninn og sagði síðan, "utan af landi dúkka hálfvitarnir upp hér og þar og allsstaðar . Það getur vel verið sagði Pétur gamli. -
En hér í borginni birtast þeir bara þegar ýtt er á hnapp ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Hann stóð fyrri utan hús í miðbænum og á hurðinni stóð " Ýtið á hnappinn" . Pétur gerði eins og fyrir var lagt og ýtti á hnappinn , og það var eins og við manninn mælt, maður kom til dyra með hátíðlegan svip. Hvað er þér á höndum maður minn spurði hann . Ekkert , ekki neitt, sagði Pétur ég gerði bara eins og stóð á skiltinu á hurðinni .
Maðurinn horfði rannsakandi á gamla manninn og sagði síðan, "utan af landi dúkka hálfvitarnir upp hér og þar og allsstaðar . Það getur vel verið sagði Pétur gamli. -
En hér í borginni birtast þeir bara þegar ýtt er á hnapp ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Gáfurnar !!
Nonni monthani sem rætt hafði við ókunnan mann smá stund sagði svo við hann . "Eg erfði allar gáfurnar frá honum föður mínum.
Já það er nefnilega það, sagði ókunni maðurinn og hvað skiftust gáfurnar á milli margra systkina þinna ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Já það er nefnilega það, sagði ókunni maðurinn og hvað skiftust gáfurnar á milli margra systkina þinna ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Simmi læknir !!
Símon læknir var kominn til ára sinna og var þekktur fyrir að vera bæði glöggur og stundum viðutan. Hann þótti reffilegur karl og geislaði af kyntöfrum
Kvöld eitt eftir langan vinnudag kom hann við á barnum, til að fá sér drykk
Næst honum sat ákaflega fönguleg og leitandi ung kona
Hún bað Símon að bjóða sér eitthvað að drekka honum til samlætis. Símon bauð í glas
“Ertu kvæntur?”
“Nei,” svaraði Símon.
“Áttu heima hér nálægt?”
“Já,” svarar Símon.
“Gætir þú hugsað þér að ég kæmi heim með þér?”
“Hvað kostar það?” spyr Símon.
“Fimm þúsund fyrir klukkutímann. Átta þúsund fyrir tvo tíma. Tuttugu þúsund fyrir allt kvöldið .
“Gott og vel, ætli sé þá ekki best að drífa sig af stað,” segir Símon.
Þegar heim var komið til Símonar, segir konan undurblítt
“Hvar viltu að ég byrji?”
Símon leit á konuna og sagði:
“Ætli það sé ekki best að þú byrjir á að þrífa gluggana. ”
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Kvöld eitt eftir langan vinnudag kom hann við á barnum, til að fá sér drykk
Næst honum sat ákaflega fönguleg og leitandi ung kona
Hún bað Símon að bjóða sér eitthvað að drekka honum til samlætis. Símon bauð í glas
“Ertu kvæntur?”
“Nei,” svaraði Símon.
“Áttu heima hér nálægt?”
“Já,” svarar Símon.
“Gætir þú hugsað þér að ég kæmi heim með þér?”
“Hvað kostar það?” spyr Símon.
“Fimm þúsund fyrir klukkutímann. Átta þúsund fyrir tvo tíma. Tuttugu þúsund fyrir allt kvöldið .
“Gott og vel, ætli sé þá ekki best að drífa sig af stað,” segir Símon.
Þegar heim var komið til Símonar, segir konan undurblítt
“Hvar viltu að ég byrji?”
Símon leit á konuna og sagði:
“Ætli það sé ekki best að þú byrjir á að þrífa gluggana. ”
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Úr fötunum !
Karlmaður kom á heilsugæslustöð og bar sig illa út af inngróinni nögl á stórutá.
Hann var ekki fyrr kominn inn en stór og stæðileg hjúkka skipaði honum valdsmannleg á svip að fara inn í skoðunarherbergið og klæða sig úr fötunum.
“En mér er bara illt í tánni,” sagði maðurinn.
“Gerðu eins og ég segi,” sagði hjúkkan ákveðin og maðurinn þorði ekki annað en gegna.
Í skoðunarherberginu var annar karlmaður hálfstrípaður.
“Þetta er alveg fáránlegt,” sagði maðurinn . “Ég kem hingað með inngróna nögl og er látinn hátta mig. ”
“Ég skil nú ekki hvað þú ert að fárast yfir því,” sagði hinn maðurinn. “Ég kom bara til að gera við símann.”
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Hann var ekki fyrr kominn inn en stór og stæðileg hjúkka skipaði honum valdsmannleg á svip að fara inn í skoðunarherbergið og klæða sig úr fötunum.
“En mér er bara illt í tánni,” sagði maðurinn.
“Gerðu eins og ég segi,” sagði hjúkkan ákveðin og maðurinn þorði ekki annað en gegna.
Í skoðunarherberginu var annar karlmaður hálfstrípaður.
“Þetta er alveg fáránlegt,” sagði maðurinn . “Ég kem hingað með inngróna nögl og er látinn hátta mig. ”
“Ég skil nú ekki hvað þú ert að fárast yfir því,” sagði hinn maðurinn. “Ég kom bara til að gera við símann.”
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
'A leið til glötunar.!!
Fyllibytta kom inn í strætó og settist við hlið prests. Presti líkaði ekki ásigkomulag sessunautar síns og sagði því, þú veist kannski ekki vinur minn að þú ert á hraðri leið til glötunar .
Það kom mikið fát á fyllibyttuna sem stóð upp og kallaði til bílstjórans, "stoppaðu strax, ég hef tekið vitlausan vagn. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Það kom mikið fát á fyllibyttuna sem stóð upp og kallaði til bílstjórans, "stoppaðu strax, ég hef tekið vitlausan vagn. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Hikstinn !!
Maður nokkur kom hlaupandi inn á bráðamóttökuna,
hann var mjög áhyggjufullur á svip og gekk að fyrsta lækninum sem hann sá og spurði:
“Hver er besta leiðin til að stöðva hiksta?”
Eins og hendi væri veifað löðrungaði læknirinn manninn
Maðurinn var að vonum mjög undrandi og greinilega brugðið.
“Hvað á svona háttarlag að þýða?” spurði hann og var hinn argasti.
“Eins og þú veist ert þú ekki með hiksta núna,” svaraði læknirinn og reyndi að vera hinn blíðasti.
“Það er svo sem rétt,” sagði maðurinn.”Það er hins vegar konan mín sem bíður í bílnum hér fyrir utan sem er með hiksta. ,”,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,

Hreyfingarleysið..
Halldór og Guðrún voru miðaldra hjón sem leituðu til Símonar heimilislæknis, vegna þreytu og óyndis.
Eftir að hafa talað við þau og skoðað þau bæði samviskusamlega, sagði læknirinn:
“Það er ekkert annað ykkur en hreyfingarleysi og leti. Það er best að þið takið ykkur tak og farið að hreyfa ykkur úti í guðs grænni náttúrunni. Þið ættuð að finna það fljótlega hvað það kemur til með að hafa góð áhrif á ykkur.”
Mánuði seinna kom Halldór aftur á stofuna til Símonar.
“Ég fór að ráði þínu, keypti mér golfsett og hef ekki slegið slöku við síðan við hittumst síðast. Mér líður alveg stórkostlega vel.”
“Það er ánægjulegt að heyra en hvernig gengur hjá Guðrúnu?” spurði læknirinn.
“Æ, því miður hefur ekkert breyst hjá henni. Hún neitar að hreyfa sig.”
“Það var leitt að heyra. Ætli sé ekki vænlegast að ég tali við hana aftur,” sagði Símon.
“Mikið yrði ég þakklátur fyrir það,” svaraði Halldór.
“Það er náttúrlega mikil sóun að láta sláttuvélina sem ég keypti um daginn fyrir fimmtíu þúsund kall, standa ónotaða í bílskúrnum!” ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,

Fæturnir sex !!
Nonni kom slompaður heim eftir ball með félögum sínum . Kom hann þá að eiginkonunni og viðhaldinu uppí rúmi . Þegar þau heyrðu í Nonna sagði konan viðhaldinu að liggja grafkyrr í rúminu, því kallinn væri blindfullur og myndi ekki taka eftir neinu . Nonni reif sig úr fötunum og datt svo uppí rúmið. Allt í einu rekur hann upp stór augu og segir, " það er einhver með okkur í rúminu". Góði farðu að sofa sagði konan , vertu ekki að þessu bulli . Ég sé sex fætur þarna til fóta segir Nonni. Þú ert fullur og séðr ofsjónir , sagði konan. Nú stendur Nonni upp og gengur aftur fyrir rúmið og segir" jú það er rétt hjá þér fæturnir eru bara fjórir, við erum bara tvö.. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Blöðrurnar !!
Manni litli fimm ára fékk að fara í bað með mömmu sinni og spurði þegar þau voru orðin nakin "mamma, hvað er þetta sem hangir á bringunni á þér" ? Mamman vissi ekki alveg hvernig hún ætti að svara og sagði því, spurðu pabba þinn þegar hann kemur heim, viss um að Manni yrði búinn að gleyma þessu þá . Um kvöldið þegar pabbi kom heim hentist Manni í fangið á honum og spurði sömu spurningar og mömmu sína fyrr um daginn. Pabbi hafði alltaf svör á reiðum höndum, og sagði að þetta væru blöðrur . Og þegar mamma deyr getum við blásið upp blöðrurnar og mamma svifið til Guðs, . Manni var ánægður með þessi svör. Nokkrum dögum seinna kemur pabbi snemma heim úr vinnunni, þá hleypur Manni á móti honum og segir með andköfum "mamma er að deyja" . Þá segir pabbi hans, vertu nú rólegur Manni minn , af hverju heldur þú að mamma sé að deyja? Nú, Gunni frændi er ofan á mömmu og er að blása í blöðrurnar og hún hrópar "´Ó Guð ég er að koma, ég er að koma... ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Við dauðans dyr !
Hjartalínuritið gaf til kynna að hjartað væri hætt að slá og gamli maðurinn missti meðvitund.
Eftir endurlífgun í u.þ.b.tuttugu sekúndur fór hjartað í gang aftur og nokkru síðar komst maðurinn til meðvitundar á ný.
Þegar sá gamli var orðinn málhress greindi læknirinn honum frá því að hjartað hefði stoppað og spurði, hvort hann gæti munað eftir einhverju sérstöku þá stund
“Ég sá skært ljós og fyrir framan mig stóð hvítklæddur maður,” svaraði sá gamli.
Læknirinn var mjög forvitinn að heyra af reynslu mannsins sem staðið hafði við dauðans dyr og spurði:
“Gætir þú nokkuð lýst þessum manni nánar sem þú sást fyrir framan þig?”
“Alveg sjálfsagt. Það varst þú!” svaraði gamli maðurinn. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Eftir endurlífgun í u.þ.b.tuttugu sekúndur fór hjartað í gang aftur og nokkru síðar komst maðurinn til meðvitundar á ný.
Þegar sá gamli var orðinn málhress greindi læknirinn honum frá því að hjartað hefði stoppað og spurði, hvort hann gæti munað eftir einhverju sérstöku þá stund
“Ég sá skært ljós og fyrir framan mig stóð hvítklæddur maður,” svaraði sá gamli.
Læknirinn var mjög forvitinn að heyra af reynslu mannsins sem staðið hafði við dauðans dyr og spurði:
“Gætir þú nokkuð lýst þessum manni nánar sem þú sást fyrir framan þig?”
“Alveg sjálfsagt. Það varst þú!” svaraði gamli maðurinn. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Ólátabelgurinn !!
Mesti ólátabelgurinn í bekknum er sonur læknisins í bænum . Einu sinni þegar kennslukonan gat engan hemil haft á drengnum sagði hún " ef þú hættir ekki þessum ólátum þá fer ég og tala við hann föður þinn ". Það held ég að þú ættir að láta vera , segir drengurinn . Nú af hverju segir kennslukonan Vegna þess að viðtalið við pabba minn kostar 3, þúsund og fimmhundruð krónur !!
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Gin og klaufaveikin !
Maður nokkur var svo drjúgur í Gin drykkjunni , að hann varð bæði klaufskur og veikur .
Eiginlega má segja um vesalings manninn að hann sé haldinn bæði Gin og klaufaveiki .
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Eiginlega má segja um vesalings manninn að hann sé haldinn bæði Gin og klaufaveiki .
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Prakkararnir !
2 strákar, 8 og 10 ára, alltaf að gera eitthvað af sér og koma sér í vandræði, foreldrarnir vissu af þessu og það var alltaf þannig að ef eitthvað gerðist þá var það mjög líklega af þeirra völdum, móðir þeirra heyrði af presti einum í bænum sem hafði verið góður í að fá drengi til að haga sér vel, svo hún fór og bað hann um að tala við strákana
Presturinn samþykkti þetta en bað um að fá að hitta þá í sitthvoru lagi, móðirinn samþykkti þetta og sendi þann yngri fyrst um morguninn og átti sá eldri að fara seinni partinn af deginum .
Presturinn sem var stór maður og með djúpa bassa rödd lét þann yngri setjast niður og spurði hann með ákveðnri röddu “veistu hvar Guð er .
Kjálkinn á stráknum datt niður, en ekkert hljóð kom frá stráknum, hann sat þarna með opinn munninn og gapandi augu . Þannig að presturinn spurði aftur
“HVAR er GUÐ!?” ennþá sat drengurinn skjelkaður af spurningunni, þá sagði presturinn aftur ennþá hærra og hristi puttann fyrir framan andlit drengsins .. “HVAR ER GUÐ
Stáksi öskraði og hljóp út úr herberginu,og beint heim og faldi sig í fataskápnum, þegar eldri bróðirinn fann þann yngri spurði hann “hvað gerðist?”
Hann svaraði móður og másandi “við erum í MIKLUM vandræðum”…
“GUÐ ER TÝNDUR OG ÞEIR HALDA AÐ VIÐ HÖFUM EITTHVAÐ MEÐ ÞAÐ AÐ GERA ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,

Lati haninn !
Hér er saga af borgarbarni sem fór í sveit
Björk litla hafði fengið að skreppa í heimsókn til vinkonu sinnar sem var í sveit hjá afa sínum og ömmu.
Hvernig var í sveitinni spurði amman þegar Björk kom heim.
Ofsalega gaman en ég þoldi ekki hanann .
Hvernig stóð á því
Hann er svo latur að hann er klifrandi upp á hænurnar allan daginn til að láta þær halda á sér .
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Björk litla hafði fengið að skreppa í heimsókn til vinkonu sinnar sem var í sveit hjá afa sínum og ömmu.
Hvernig var í sveitinni spurði amman þegar Björk kom heim.
Ofsalega gaman en ég þoldi ekki hanann .
Hvernig stóð á því
Hann er svo latur að hann er klifrandi upp á hænurnar allan daginn til að láta þær halda á sér .
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Ballerínan !!
Stór og mikill kvenmaður, í ermalausum sumarkjól gekk inn á bar
Hún lyfti hægri handleggnum hátt upp, svo kafloðinn handarkrikinn blasti við
- benti yfir þéttsetinn barinn og spurði: “Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?”
Það sló þögn á mannskapinn, sem reyndi að leiða brussuganginn í henni hjá sér
Lítill sjóari, kófdrukkin og glaseygður sem sat við enda barborðsins, sló í borðið og hrópaði: “Gefðu ballerínunni í glas”
Barþjónninn hellti í glasið og skessan þambaði úr því.
Hún sneri sér aftur að gestunum og með sama gassaganginum glennti hún loðinn handarkrikann framan í þá og spurði
“Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?”
Aftur var það litli, fulli sjóarinn sem skellti peningum á barborðið og sagði “Gefðu ballerínunni aftur í glas”
Barþjónninn gekk til hans og sagði: Heyrðu kallinn minn - það er þitt mál ef þú vilt borga vínið fyrir kjellinguna,- en af hverju kallarðu hana alltaf ballerínu
“Ég fullyrði”, svaraði fulli sjóarinn - “að kona sem getur lyft fætinum svona hátt, hljóti að vera ballerína” ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,

Ökuskírteinið !
Hún er af þeirri tegund kvenna sem getur komið flestum mönnum til að kasta sér í ár, hlaupa uppá fjöll , eða klifra uppí ljósastaura .
Jú,,, alveg rétt---- kona með ökuskírteini ... ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Jú,,, alveg rétt---- kona með ökuskírteini ... ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Ljóskurnar og hrossin !
Það voru tvær ljóskur sem fengu sinn hvorn hestinn að gjöf .
þær gátu ekki séð muninn á hestunum tveimur .
Svo þær klipptu taglið af öðrum þeirra.
En það leið ekki langur tími uns taglið var komið í sitt fyrra horf.
Nú settust þær niður og hugsuðu hvað þær gætu gert. “Við klippum faxið af öðrum þeirra, segir önnur ljóskan” Og það var gert. En það leið heldur ekki langur timi uns faxið náði sinni fyrri mynd
…og enn einu sinni settust þær niður og hugsuðu málið. Hvað þær gætu gert. Þá segir önnur þeirra skyndilega. “Sjáðu. Sá svarti er aðeins hærri en sá hvíti” ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
þær gátu ekki séð muninn á hestunum tveimur .
Svo þær klipptu taglið af öðrum þeirra.
En það leið ekki langur tími uns taglið var komið í sitt fyrra horf.
Nú settust þær niður og hugsuðu hvað þær gætu gert. “Við klippum faxið af öðrum þeirra, segir önnur ljóskan” Og það var gert. En það leið heldur ekki langur timi uns faxið náði sinni fyrri mynd
…og enn einu sinni settust þær niður og hugsuðu málið. Hvað þær gætu gert. Þá segir önnur þeirra skyndilega. “Sjáðu. Sá svarti er aðeins hærri en sá hvíti” ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Í réttarsalnum !!
Ég ók sko alls ekki á 80 km. hraða, sagði maðurinn við dómarann . Ég hef í mesta lagi verið á 50 km, hraða eða kannski frekar á 40 . Nei annars ætli ég hafi ekki verið á 3o . Heyrðu , hættu nú greip dómarinn fram í , ef þú hættir ekki núna , endar bara á því að þú bakkar á einhvern . ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Einn á móti !!
Maður á fertugs aldri kom til læknis í reglubundið eftirlit .
Ekki bar á öðru en að maðurinn væri með eindæmum vel á sig komin.
“Ég finn ekkert að þér .
Er eitthvað annað sem þú ert að velta fyrir þér ?” spurði læknirinn
Ég hef verið að spá í það að láta taka mig úr sambandi,” sagði maðurinn og fór svolítið hjá sér .
“Það er nú stór ákvörðun,” sagði læknirinn.
“Hefur þú rætt málið heima
“Já” sagði maðurinn.
“Atkvæðin féllu þannig að sextán eru þessu fylgjandi, en ég er einn á móti.” ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ekki bar á öðru en að maðurinn væri með eindæmum vel á sig komin.
“Ég finn ekkert að þér .
Er eitthvað annað sem þú ert að velta fyrir þér ?” spurði læknirinn
Ég hef verið að spá í það að láta taka mig úr sambandi,” sagði maðurinn og fór svolítið hjá sér .
“Það er nú stór ákvörðun,” sagði læknirinn.
“Hefur þú rætt málið heima
“Já” sagði maðurinn.
“Atkvæðin féllu þannig að sextán eru þessu fylgjandi, en ég er einn á móti.” ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Vel upp alinn !!
Hvað haldið þið að hafi komið fyrir mig þegar ég skrapp til Akureyrar um daginn ? Jónas ; Ég veit ekki, varstu ekki á hóteli þar
Jú, en þegar ég kom uppá hótelherbergið mitt biðu tvær gullfallegar stúlkur eftir mér .
Tvær, og hvað gerðir þú
Þar sem ég er vel uppalin ungur maður þá gat ég ekki annað en beðið aðra stúlkuna að fara heim til sín !!! ,,,, mér datt þetta svona í hug,,,,
Jú, en þegar ég kom uppá hótelherbergið mitt biðu tvær gullfallegar stúlkur eftir mér .
Tvær, og hvað gerðir þú
Þar sem ég er vel uppalin ungur maður þá gat ég ekki annað en beðið aðra stúlkuna að fara heim til sín !!! ,,,, mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Eldurinn !!
Það kom upp eldur í farþegaskipinu . Fólkið þusti skelfingu lostið að björgunarbátunum . Skipstjórinn stóð hjá og stjórnaði björgun farþega sköruglega .
Hræddur Fransmaður reyndi að klifra uppí einn björgunarbátinn en skipstjórinn kalllaði til hans höstugur .- Þú þarna, komdu til baka eis og skot, við tökum konurnar fyrst
Það birti yfir svip Frakkans og hann spurði skipstjórann hikandi :- Heldur þú að við náum því
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Hræddur Fransmaður reyndi að klifra uppí einn björgunarbátinn en skipstjórinn kalllaði til hans höstugur .- Þú þarna, komdu til baka eis og skot, við tökum konurnar fyrst
Það birti yfir svip Frakkans og hann spurði skipstjórann hikandi :- Heldur þú að við náum því
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Sláttuvélin !!
-Viltu lána pabba sláttuvélina þína sex ára snáði nágranna sinn.
Áttirðu að spyrja svona nágranninn sem var eldri maður og sérstaklega kurteis.
Gleymdirðu ekki einhverju ungi maður? Jú, ansaði drengurinn " pabbi sagði" ef karlskrattinn segir nei
farðu þá bara í næsta hús-. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Áttirðu að spyrja svona nágranninn sem var eldri maður og sérstaklega kurteis.
Gleymdirðu ekki einhverju ungi maður? Jú, ansaði drengurinn " pabbi sagði" ef karlskrattinn segir nei
farðu þá bara í næsta hús-. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Himnaförin !!
Prestur dó og fór til himna.
Næstur á undan honum í röðinni við Gullna hliðið var ungur maður með sólgleraugu, klæddur í gallabuxur og skræpótta skyrtu undir leðurjakka.
Sankti Pétur spurði hann:
“Hver ert þú, svo ég megi veita þér aðgang að dýrð himnanna
“Ég er Joe Cohen leigubílstjóri frá New York.”
Sankti Pétur leitaði að honum á listanum hjá sér, fann hann, brosti og sagði:
“Taktu þennan silkikufl og silfurslegna staf og gakktu inn í fögnuð herra þíns.
Leigubílstjórinn tók fúslega við því sem að honum var rétt og gerði það sem fyrir hann var lagt
Þá var röðin komin að prestinum sem sagði borginmannlegur
“Ég er Joseph Snow og var prestur hjá söfnuði heilagrar Maríu í 43 ár
Sankti Pétur leitaði í kladdanum, fann hann og sagði:
“Rétt er nú það. Taktu þessa bómullarskikkju og eikarstaf og gakktu inn í fögnuð herra þíns. ”
“Heyrðu góði,” sagði presturinn. “Hér á undan mér var leigubílstjóri frá New York sem fékk silkikufl og silfursleginn staf en ég fæ bara bómull og eikarprik. Hvað er eiginlega að gerast hér?”
“Vinur minn,” sagði Sankti Pétur. “Í himins bók er spurt um hverju menn hafi áorkað. Í 43 ár prédikaðir þú yfir sofandi söfnuði .
Maðurinn á undan þér var aðeins fá ár leigubílstjóri í New York en í hverri ferð hans lágu farþegar
hans á bæn meðan hann ók um borgina.,,, ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,

Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum