Myndagetraun 2
+5
Ágústa B 696
Sponni 447
Ægir og Sigga
Anna M nr 165
Björn H. no. 29
9 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Myndagetraun 2
Til að halda utanum upplýsingar held ég að rétt sé að koma með nýjan þráð fyrir hverja mynd.
Hef velt myndinni mikið fyrir mér en ekki komist að niðurstöðu.
Þessir steinar, lítill gróður og stutt í þokuna.
Er það ekki rétt að á sunnanverðum Vestfjörðum er meiri gróður.
Ekki finnst mér þetta passa við Ketubjörg á Skaga.
Hallast að Ströndum það gerir gróðurleysið, þokan og steinarnir, Benedikt talar um veg eða vegslóða sem tengist öðrum betri.
Einnig gæti myndin hugsanlega verið af norðausturhorninu .
Er búin að senda góðum vin myndina en hann hefur víða gengið, vonandi fæ ég eitthvað frá honum.
Svo er önnur myndagáta hjá Flökkurum og þar er staðan sú að menn vilja helst vera við Húnaflóann.
Þetta eru góðir landafræðitímar.

Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Númer 2.
Sammála svo allt fari ekki í belg og biðu, spjöllum við um myndefnið nr 2 hér.
Ekki þekki ég staðinn, aldrei farið svona úr alfaraleið, en gæti þetta verið hluti af Látrabjargi?
Nú hlægið þið sjálfsagt, en ég get sagt ykkur að ég fékk nú aldrei háar einkannir í landafræðinni
Hvernig kemst maður á flakkarasíðuna, hef gert það áður en týni linknum alltaf.

Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
RE. Myndagetraunin
Anna M nr 165 skrifaði:Sammála svo allt fari ekki í belg og biðu, spjöllum við um myndefnið nr 2 hér.
Ekki þekki ég staðinn, aldrei farið svona úr alfaraleið, en gæti þetta verið hluti af Látrabjargi?
Nú hlægið þið sjálfsagt, en ég get sagt ykkur að ég fékk nú aldrei háar einkannir í landafræðinni
Hvernig kemst maður á flakkarasíðuna, hef gert það áður en týni linknum alltaf.
Til að komast á heimasíðu Flakkara þá er hún " húsbílar.is" .. Fallinn, þetta er ekki Látrabjarg.
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Böhhhh!
Bjóst við því að falla Ægir, en til að kóróna fávisku mína, þá máttu upplýsa mig hvar Höskuldarvellir eru??
Sé í gestabók að sumir ferðafélagar fara þangað um helgar yfir veturinn.
Já og takk fyrir linkinn
Sé í gestabók að sumir ferðafélagar fara þangað um helgar yfir veturinn.
Já og takk fyrir linkinn
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Halló Anna. Þið beygið af Reykjanesbraut við Vatnsleysustrandar afleggjara og farið í átt að Keili og eins og leið liggur upp að fjöllunum. Ég held að leiðin sé merkt. Vonandi ratið þið.
Sponni 447- Fjöldi innleggja : 38
Hvaðan ertu? : Grindavík
Registration date : 16/03/2008
Roðn...
Ja nú roðnaði ég var komin með hugann austur fyrir fjall.
Er góð aðstaða þarna? Takk fyrir upplýsingarnar
Þið eruð myndarhjón, flott mynd af ykkur Salbjörg.
Er góð aðstaða þarna? Takk fyrir upplýsingarnar
Þið eruð myndarhjón, flott mynd af ykkur Salbjörg.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Anna takk fyrir hrósið. Um aðstöðuna á Höskuldarvöllum vitum við ekki. Við höfum ekki farið þangað, vitum bara hvar vellirnir eru. En kanski svarar einhver sem veit. Ég veit um hóp, svona 6 til 7 bílar sem fara þarna á sumrin og líkar vel en ég hef ekkert hugsað um að kanna aðstöðuna. En hugmyndin að fara Reykjaneshringinn er góð, þá er ég ekki síður að hugsa um að hægt væri að nýta nýtt tjaldstæði í minni heimabyggð.
Sponni 447- Fjöldi innleggja : 38
Hvaðan ertu? : Grindavík
Registration date : 16/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Pass hjá mér um þennan stað.
Hef aldrei komið á Hornstrandir en finnst það líklegt að myndin sé tekin á því svæði. Ég er því jafntóm og systa (pabbi verður ekki ánægður með dæturnar) en ég er svo heppin að kallinn er að koma til mín þannig að ég verð kannski með svarið við næstu gátu
Líst vel á að spjallið um hverja gátu sé merkt.

Ágústa B 696- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008
Já systa,
Hann pabbi sko, eins og hann sagði okkur frá öllum fjöllum, hólum og veit ekki hvað og hvað, eins og við ferðuðumst mikið, þá man ég varla neitt. En margar sögurnar man ég í kringum vissa staði, úff algjör gullfiskur, og svo núna alsheimer ligth
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Hvar eru allir okkar fróðustu ferðamenn, það er ekki neitt að frétta, engin umræða í gangi, er lausnin komin til Steina og engin veit neitt.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Held að Steini viti svarið.
Ef ég má gefa vísbendingu. Þangað liggur beinn og breiður vegur, en vegurinn, sem varla er vegur , þá tengist hann (vegurinn) ekki öðrum vegi en hann liggur samt frá þorpi sem ekki er þorp, til herstöðvar sem ekki er herstöð . Bíða mín þar æsku draumalönd.

Þú er magnaður, ljóðið Sigling eftir Örn Arnarson á að vísa okkur vegin.
Hvað segirðu ef ég færi mig í námunda við Hornafjörð, að vísu langt frá upphaflegu plani en???
Hvað segirðu ef ég færi mig í námunda við Hornafjörð, að vísu langt frá upphaflegu plani en???
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Hornafjörður er ekki nálagt, betra að fara í nv halda sig þar. Er ekki bara einn beinn og breiður vegur á nv landi?
Já það verður að vera Sigling
Konan segir þetta á Vestfjörðum sem er sennilega rétt.
Já það verður að vera Sigling
Konan segir þetta á Vestfjörðum sem er sennilega rétt.
Re: Myndagetraun 2
Heil og sæl öll sömul.
Datt í hug að láta sjá mig hér, svo allir haldi ekki að ég hafi algjörlega horfið af sjónarsviðinu.
Reyndar fer ég oft hér inn, stundum oft á dag svona til að forvitnast um hvað sé í gangi.
Það er virkilega gaman af púslinu og og einnig myndagetrauninni, hvortveggja skemmtileg nýjung og endilega halda áfram með bæði.
Ég var eins og aðrir, velti fyrstu myndinni nokkuð fyrir mér, en fannst landslagið neðar eitthvað kunnuglegt, enda ættuð úr Dýrafirðinum, en aldrei komist svona hátt.
Svo ég segji eitthvað um seinni myndina, finnst mér hún einnig vera að vestan. Getur þetta verið fjallið fyrir ofan Bolungarvík???
Bara pælingar Það verður að spá, viðurkenni að við gerum allt of lítið af að fara svona hátt, Óli er svo lofthræddur
Nú er að sjá hvort þetta fari á réttan stað?

Ása Magg- Fjöldi innleggja : 8
Hvaðan ertu? : Akranes
Registration date : 15/04/2008
Re: Myndagetraun 2
Þú ert farin að voglna en það verður að fara í siglingu annars er svo langt að labba.
Síðast breytt af Benedikt 687 þann Sun Jan 18 2009, 15:57, breytt 1 sinni samtals
Re: Myndagetraun 2
Segi það með Ásu, maður fer bara ekki svona hátt, hvað þá úr alfaraleið
Alveg glötuð er ég í þessum myndaleik pússla bara á meðan
Gott að sjá Ása að þú ert á lífi og komin úr jólahíðinu, á að mæta á Góugleði??
Alveg glötuð er ég í þessum myndaleik pússla bara á meðan
Gott að sjá Ása að þú ert á lífi og komin úr jólahíðinu, á að mæta á Góugleði??
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Benedikt skrifar.
Ef ég má gefa vísbendingu. Þangað liggur beinn og breiður vegur, en vegurinn, sem varla er vegur , þá tengist hann (vegurinn) ekki öðrum vegi en hann liggur samt frá þorpi sem ekki er þorp, til herstöðvar sem ekki er herstöð . Bíða mín þar æsku draumalönd.
Hornafjörður er ekki nálagt, betra að fara í nv. halda sig þar. Er ekki bara einn beinn og breiður vegur á nv. landi?
Já það verður að vera Sigling
Þú ert farin að volgna en það verður að fara í siglingu annars er svo langt að labba.
Þetta hafa verið svör og vísbendingar Benedikts.
Það er engin beinn og breiður vegur á Norðvesturlandi nema hafið.
Er það ekki bara á Hornströndum sem borgar sig að sigla, annars verður maður að ganga svo langt.
Þorp sem ekki er þorp og herstöð sem ekki er herstöð.
Hef einu sinni gengið úr Ófeigsfirði í Reykjafjörð og ekki minnist ég svona landslags en það er ekki alveg að marka, langt síðan og harði diskurinn í kollinum eitthvað að gefa sig.
Getur verið að svæðið tengist Straumnesi?

Verð bara að viðukenna að þessi mynd er ekki inná harðadiskinum hjá mér , og kannske ekki furða ef þessi mynd er tekin utan alfaravega kannske einhversstaðar í Jökulfjörðum, svo eru nú takmörk hvað geymist á diskinum. Hef aldrei komið á þær slóðir, lengst ekið við norðanvert Ísafjarðardjúpi að Unaðsdal þar endaði vegurinn þeim megin. Eins og þeir vita sem ekið hafa um okkar fagra land , þá er ekki alltaf fjallasýn en reyni samt að fylgjast með getrauninni með á vör. já er sammála því að merkja linkinn eftir því sem myndunum fjölgar td. getraun eitt- tvö og svo frv.
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
BJÖRN MEÐ RÉTT SVAR VIÐ GETRAUN 2
Sælir félagar!
Held við verðum að gefa Birni rétt fyrir sitt svar. Þetta er Straumnes, eða eins og Benedikt segir um myndina:
"Vorum að labba þarna til að skoða vitann sem er framá nesinu og heitir Straumnesviti. Upp á fjallinu ( sem er fyrir aftan ljósmyndarann) eru leifar af herstöð sem byggð var eftir síðara stríð og vegur lagður að henni frá Látrum í Aðalvík. Þetta er fyrir norðan Ísafjarðardjúp ."
Set inn aðra mynd á eftir. - Kv. Steini

Núna verður Benedikt að segja okkur svolítið meira um vísbendingarnar.
Vegur sem ekki er vegur og herstöð sem ekki er herstöð, ég lagði minn skilning í þær og ég held að það hafi hjálpað mér.
Þarna hef ég ekki komið en kannski á maður það eftir.
Vegur sem ekki er vegur og herstöð sem ekki er herstöð, ég lagði minn skilning í þær og ég held að það hafi hjálpað mér.
Þarna hef ég ekki komið en kannski á maður það eftir.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 2
Látrar var( er) þorp austast í Aðalvík þangað liggur beinn og breiður vegur ( Sjórinn) þaðan var lagður bílvegur upp á Straumnesfjall er núna sæmilega göngufær (er varla vegur) Á Straumnesi stendur Straumnesfjall þar var reyst ratsjárstöð í stöðinni voru um 100 manns á árunum 1953 til 1960 Innan við Látra er stór flugvöllur sem er frá sama tíma og herstöðin. Í Látrum bjuggu um 120 manns í kringum 1920 Uppá Straumnesi eru mjög stórar byggingar, maður var undrandi??? á öllum þessum stóru byggingum á þessum stað, og hvað lítið er talað um þær. Hef margoft siglt þarna framhjá og aldrei séð þessar byggingar, held þær sjáist ekki frá sjó en oft séð vitann og fórum við að skoða hann frá annarri hlið.
http://bspsola.123.is/album/default.aspx?aid=132443
http://bspsola.123.is/album/default.aspx?aid=132443
Re: Myndagetraun 2
Takk fyrir leiðsögnina Benedikt, hún var góð, sagði ýmislegt en ekki of mikið.
Það er svo gaman af því að þurfa að hafa svolítið fyrir hlutunum og svörin þín ráku mig áfram.
Það væri gaman að koma á staðinn, ætli allar byggingar séu ónýtar, þær myndir sem ég hef fundir eru bara af rústum.
Ég var svo heppinn að vinur minn átti bróður sem vann á ratsjárstöðinni á Heiðarfjalli og við fengum að koma í heimsókn og skoða, (1958-9?) man ósköp lítið frá heimsókninni, það var svarta þoka ef ég man rétt.
Það er svo gaman af því að þurfa að hafa svolítið fyrir hlutunum og svörin þín ráku mig áfram.
Það væri gaman að koma á staðinn, ætli allar byggingar séu ónýtar, þær myndir sem ég hef fundir eru bara af rústum.
Ég var svo heppinn að vinur minn átti bróður sem vann á ratsjárstöðinni á Heiðarfjalli og við fengum að koma í heimsókn og skoða, (1958-9?) man ósköp lítið frá heimsókninni, það var svarta þoka ef ég man rétt.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Myndagetraun 2
Þetta var frábær fróðleikur og gaman að skoða myndirnar Benni frábært veður sem þið hafið fengið þarna hef ég aldrei komið þarna en mikið væri gaman að fara þarna í góðu veðri það hefur allt að segja. Gaman af þessum myndagátum en verst hvað maður er illa að sér í landafræðinni
En ég vona að þessu verði haldið áfram nú er komin sú þriðja og vonandi taka fleiri þátt í pælingunum um hana
Kv.Soffía Keili

keilir- Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum