Kolka - nýji hundurinn okkar
+2
hafdísjúlía
Steini 69
6 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Kolka - nýji hundurinn okkar
Sælir félagar!
Fengum hana Kolku, sem er 8 mánaða tík í gærkveldi, frá Akureyri og er hún strax orðin hin kátasta með nýja eigendur og unir sér afar vel.
Hún er King Charles Spaniel(English Toy Spaniel) og féllum við alveg fyrir henni þegar við rákumst á hana á netinu. Sjálfsagt er það trýnið, sem minnir svolítið á hann Ými okkar. En fyrir þau ykkar sem ekki vita, þá fékk hann friðinn fyrir stuttu eftir mikil veikindi. Hans er sárt saknað.
Það er örlítill stærðarmunur á Kolku og Ými heitnum.
Kv. Steini

Re: Kolka - nýji hundurinn okkar
Alveg er hún æðisleg, til hamingju bara með hana, og hún á eftir að vera sú stjórnsama á heimilinu.
hafdísjúlía- Fjöldi innleggja : 212
Age : 67
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008
Re: Kolka - nýji hundurinn okkar
Segðu... Já ætli það ekki... allavega verður örugglega tekið tillit til hennar
Frúin nú þegar búin að kaupa ólar og prinsessubæli og eitt og annað smálegt
Kæmi ekki á ávart þótt jólasveinabúningur yrði það næsta

Kolka.
Hjartanlega til hamingju með krílið! Ég veit af reynslu hvernig það er að sjá á eftir hundi sem manni þykir endalaust vænt um, og skil ykkur ákaflega vel. Ef mér tekst að setja inn hlekk þá má lesa brot um Mola minn hér neðan við.
Bestu kveðjur, Gunnar Th. (sem eyddi seinnni hluta dagins í að setja 220v tengil á Econline- inn. Svo ótrúlegt sem það er þá hefur hann verið ferðabíll frá upphafi ´91 án þess að hafa 220v inntak - einungis snúru inn um glugga!..........http://hugdettur.blogcentral.is/blog/2007/5/17/thad-er-tomlegt-i-dag/

Takk takk..
Já þetta er alveg andstyggilegt þegar maður þarf að láta svæfa þessar elskur. Þurfti að gera þetta fyrir einum 20 árum(hund sem dóttir mín átti) og hugsaði ekki um annað í einhverjar vikur á eftir, og hét því þá verða aldrei með hund. Síðan stóð eins á hjá vini mínum þ.e að hann gat ekki lengur verið með Ými, vegna breyttra aðstæðna, og ætlaði að lóga honum(þá tæpra 2ja ára) og þá fannst mér léttara að taka við honum en að standa við heitið frá því forðum. Og það var sannarlega þess virði. Hann reyndist yndislegur í alla staði og það leið ekki á löngu þar til að manni fannst að hann hefði fylgt manni allt lífið. En við fengum þó notið hans í 5 og hálft ár til viðbótar og erum þakklát fyrir það!

Já Steini til hamingju, megi Kolka verða ykkur til yndis og ánægju, þið eruð nú dálítið krúttleg félagarnir á myndinni ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Kolka - nýji hundurinn okkar
Takk takk Ægir... já þú segir kannski eins og einn... að það leyni sér ekki á myndinni hver "pabbi" hennar sé... sami sauðasvipurinn á báðum
Kv. Steini
Kv. Steini
Re: Kolka - nýji hundurinn okkar
Til hamingju með hana Kolku, hún er ekkert smá heppin að hafa eignast ykkur!
Hlýtur að vera viðbrigði að fá minni hund og yngri, en Ýmir var. Vona bara að sambúðin gangi vel.

Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Kolka - nýji hundurinn okkar
Steini og Helga
Til hamingju með Kolku, megi hún sem fyrst fylla skarðið sem Ýmir skildi eftir en hann var virðulegur karekter sem gaman var að kynnast.
Myndin er flott af ykkur en sú stutta er svolítið varðhundsleg á svipinn.
Það verður töluverður munur á plássinu sem Kolka tekur en kannski verður hún meiri ærslabelgur.
Hérna í Borgarnesi er kuldi og strekkings vindur og það vantar jólasnjóinn.
Ef að Steingrímur þarf ekki alla okkar peninga ætlum við Þóra að vera duglegri að ferðast næsta sumar, það talar víst engin um ferðalög erlendis núna um þessar mundir.
Við Þóra óskum öllum spjallverjum gleðilegrar jólahátíðar.

Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Kolka - nýji hundurinn okkar
@Anna - Takk takk... sambúðin gengur hið besta enda tók það ekki nema nóttina fyrir Kolku að eiganst okkur skuldlaust
@Björn - Takk takk.. Já Ýmir kallinn var mikill karakter og, ótúlegt en satt, þá er sú stutta það líka. Hún er býsna róleg en fylgist svo sem vel með öllu og öllum sem koma og sýnir smá varðhundstakta, en er ekki með neitt gjamm, sem undirritaður er býsna þakklátur fyrir:-)
Já veðrið er svipað hérna megin... voru -10°c í morgun en svo var þetta komið niður í -6° svo ég sleppti því að fara í yfirhöfn þegar við fórum að verlsa. Svo eftir eina 40þúsunda körfu í Krónunni var sko kominn renningur úti svo það var allt að því að maður saknaði jakkans... eða allavega því að vera í langerma
Gleðileg jól öll sömul, Steini, Kolka, kona og börn

Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum