Hve margar nætur
+4
Gyða og Jói 591
Ágústa B 696
hafdísjúlía
Sponni 447
8 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Hve margar nætur
Góðan og blessaðan daginn. Við sváfum 34 nætur í okkar bíl og hefðum viljað hafa þær fleiri. Við sofum alveg rosalega vel í bílnum og það er svoooo gott að slappa af og njóta þess að vera til. En hverjir halda svo dagbók um hvert farið er og hvernig tjaldstæðin eru og hverja þú hittir og svo framvegis?
Sponni 447- Fjöldi innleggja : 38
Hvaðan ertu? : Grindavík
Registration date : 16/03/2008
Re: Hve margar nætur
Minn maður hefur skrifað niður í hverri ferð allt sem þarf að skrifa niður, hvar við erum, hvernig veðrið er
hvernig aðstæður eru, hverjir eru hvar og þar framm eftir götunum.
Þetta er mjög skemmtilegt þegar maður man t.d. ekkert eftir sumarið hvar maður var.
hvernig aðstæður eru, hverjir eru hvar og þar framm eftir götunum.
Þetta er mjög skemmtilegt þegar maður man t.d. ekkert eftir sumarið hvar maður var.
hafdísjúlía- Fjöldi innleggja : 212
Age : 67
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008
Re: Hve margar nætur
Við höldum dagbók og höfum gert frá fyrsta degi í bílnum.
Maður er orðinn svo gleyminn að þetta er eina ráðið til að hægt sé að rifja upp seinna meir.
Höfum líka gert þetta fyrir ættaróðalið í 20 ár og það hefur nú heldur betur borgað sig vegna ýmissa "deilumála" og þess háttar.

Ágústa B 696- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008
Sumarnætur 2008
Við hjónin sváfum 47 nætur í húsbílnum okkar í sumar. Ég hef haft það fyrir reglu að skrá alltaf niður hvar við dveljum hverju sinni, með hverjum við ferðumst og hvernig veðrið er og margt fleira skemmtilegt
ég hef gert þetta í mörg ár og hef gaman af.
ég hef gert þetta í mörg ár og hef gaman af.
Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Hve margar nætur
Við gistum 53 nætur í bílnum í sumar sem er heldur minna en venjulega.
Við höldum líka dagbók í bílnum og það er eins og hjá sumum öðrum, það er oft flett í henni til
að útkljá ágreining, þar sem maður er orðinn heldur gleyminn.
Björg og Óli nr. 717
Við höldum líka dagbók í bílnum og það er eins og hjá sumum öðrum, það er oft flett í henni til
að útkljá ágreining, þar sem maður er orðinn heldur gleyminn.
Björg og Óli nr. 717
Ólafur Þór Þorgeirsson- Fjöldi innleggja : 1
Registration date : 10/03/2008
Velkomin.
Björg og Óli á spjallið
Við höfum ekki skráð okkar nætur, nema veiðitúra í sumar, en við erum búin að vera ca 55 nætur, allar helgar og sumarfríið okkar og erum ekki hætt enn
Okkur langar í dorg eða snjóferð.
Við höfum ekki skráð okkar nætur, nema veiðitúra í sumar, en við erum búin að vera ca 55 nætur, allar helgar og sumarfríið okkar og erum ekki hætt enn
Okkur langar í dorg eða snjóferð.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Hve margar nætur??
Gistinæturnar í "L'INU" eru eitthvað nálægt sextíu þetta árið. Væru fleiri en vaktavinna konunnar aðra hverja helgi takmarkar ferðirnar utan sumarfrísins . Annars er þetta bara svo æðislegt í góðra vina hópi, stutt í einhverja mestu útivistarparadís landsins þið vitið "Í Hallormsstaðaskógi er angan engu lík" eins og segir í kvæðinu, og eins og þeir vita sem um austfirðina aka þá eru staðirnir margir og fallegir ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Sumarnætur 2008
Gistinæturnar hjá okkur urðu ekki nema 45 í sumar, frekar lítið, en þetta stendur allt til bóta vonandi. Ég var afskaplega löt í sumar og skrifaði enga dagbók, en gerði þetta í fyrra og hittefyrra og það var mjög gaman og var með miklar bollaleggingar að hafa svo nokkrar myndir úr hverri ferð á annarri blaðsíðunni en þetta komst aldrei í verk hjá mér. En ég ætla að bæta mig að sumri þetta verður eigum við að segja áramóta heitið...... En það er mjög gaman að skrifa dagbók og lesa þetta seinna meir ekki spurning
kv.Soffía Keili
kv.Soffía Keili
keilir- Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum