Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Svona verður við líka eða hvað !!!

Go down

Svona verður við líka eða hvað !!! Empty Svona verður við líka eða hvað !!!

Innlegg  Helga 298 Fös Apr 18 2008, 02:37

Þrjár systur á aldrinum 92, 94, og 96 ára bjuggu saman.

Kvöld eitt var sú 96 ára að fara í bað. Hún setur annan fótinn í baðið og hikar svo við. Hún hrópar niður stigann, "Var ég að fara ofan í baðið eða að fara upp úr því?"

Hin 94 ára gamla kallar til baka. " Ég veit það ekki, ég skal koma upp og athuga það". Hún leggur af stað upp stigann en hikar síðan og kallar, "
Var ég að fara upp stigann eða niður?".

Á meðan var sú 92ja ára að fá sér tebolla í eldhúsinu og hlustaði á systur sínar. Hún hristir höfuðið og segir " Ég vona svo sannarlega að ég verði ekki þetta gleymin".
Hún bankar þrisvar í borðið (7 - 9 - 13).

Síðan kallar hún, "Ég kem upp og hjálpa ykkur báðum um leið og ég er búin að fara til dyra og sjá hver er að banka.
Helga 298
Helga 298

Fjöldi innleggja : 156
Age : 63
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 09/03/2008

http://www.tofraljos.com

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum