Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Hollara að ruglast ekki...

Go down

Hollara að ruglast ekki... Empty Hollara að ruglast ekki...

Innlegg  Steini 69 Fim Apr 10 2008, 16:37

Ungur maður ætlaði að gleðja kærustuna sína á afmælisdaginn hennar, þauhöfðu ekki verið lengi saman og eftir dágóða umhugsun þá ákvað hann að kaupa handa henni loðfóðraðar lúffur-það væri rómantísk gjöf en ekki of persónuleg.
Hann fór í bæinn með yngri systur kærustunnar og hún hjálpaði honum að velja lúffurnar, sjálf keypti systirin sér nærbuxur.
Afgreiðslukonan ruglaði saman pökkunum þegar hún pakkaði hlutunum inn og ungi maðurinn sendi því óvart nærbuxurnar til kærustunnar án þess að vita af
því. Hann skrifaði hjartnæmt bréf til hennar sem hann lét fylgja pakkanum og að sjálfsögðu ætlaðist hann til þess að hún læsi bréfið áður en að hún tæki utan af gjöfinni.

Bréfið var svohljóðandi:
Ég valdi þessa gjöf vegna þess að þú ert vanalega ekki í svona þegar við förum saman út á kvöldin. Ég hefði valið aðeins lengri ef systir þín hefði ekki verið með mér,en hún er alltaf í svo litlum sem erfiðara er að fara úr............
Liturinn er dáldið viðkvæmur,en afgreiðslukonan sýndi mér sitt eintak sem hún hafði verið í 3 vikur samfleytt á þess að sæist á þeim, ég bað hana að máta eintakið þitt og hún var virkilega sæt.
Ég vildi óska að ég fengi að klæða þig í gjöfina í fyrsta skipti vegna þess að ég er viss um að aðrar hendur munu snerta hana áður en að ég fæ
tækifæri til að hitta þig aftur................. Þegar þú ferð úr mundu þá að blása í þær áður en þú leggur þær frá þér vegna þess að þær verða yfirleitt dáldið rakar..............
Ímyndaðu þér bara hve oft ég á eftir að kyssa gjöfina á næstu mánuðum, ég vona að þú verðir í þeim á laugardagskvöldið......................
Ástarkveðja.

P.s. Nýjasta tískan er að bretta aðeins upp á þær og láta þetta loðna sjást! Embarassed
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum