Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Myrkrið

Go down

Myrkrið Empty Myrkrið

Innlegg  Björn H. no. 29 Mið Des 08 2010, 13:11

Myrkrið verður varla svartara en það er núna, þungt yfir og rigningarsuddi. Shocked
Við skruppum suður í morgun og komum til baka núna um kvöldmatarleytið, ljósin frá bílnum virtust bara duga nokkra metra framfyrir bílinn, þvoði þau á N1 í bænum hans Krema áður en haldið var í hinn fagra Borgarfjörð. cheers

Við skruppum á síðustu helgi á Jólatónleika Björgvins og það var bara gaman, hefði gjarnan viljað heyra meira í sumum og minna í öðrum en var vel sáttur, miðaverðið er reyndar alveg úr takt við fjárráð þjóðarinnar en það var húsfylli. bom

Hvernig ætli það hafi verið hjá þeim sem völdu að fara úr bænum og skoða stjörnurnar og norðurljósin. Very Happy

Við félagarnir stefnum að því að skreppa uppí Tröllaríki, svona til að eiga notalega stund og kanna hvort ekki sé allt í lagi.
Það er fátt sem er betra en að horfa á himininn þarna, grilla, finna smá il í tánni (litlu) og bara að láta sér líða vel , engin ljósmengun og oft algjör stilla. Razz

Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu


 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum