Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Ljóskur eru klárar

2 posters

Go down

Ljóskur eru klárar Empty Ljóskur eru klárar

Innlegg  Björn H. no. 29 Sun Mar 30 2008, 13:53

Mig bráðvantaði nokkurra daga frí í vinnunni en ég þóttist vita að stjórinn myndi ekki taka það í mál.Þá datt mér í hug að hugsanlega myndi hann leyfa mér það ef ég hegðaði mér eins og geðbilaður maður.
Svo að ég brá á það ráð að hanga öfugur í loftinu og gefa frá mér furðuleg hljóð. Samstarfskona mín - sem er ljóska - spurði mig hvað ég væri að gera. Ég sagði henni að ég ætlaði að þykjast vera ljósapera svo að stjóri héldi að ég væri kexruglaður og gæfi mér nokkurra daga leyfi.
Skömmu síðar birtist stjóri á skrifstofunni og sagði við mig: "Drottinn minn, hvað ertu að gera?" Ég sagði honum að ég væri ljósapera. Hann sagði: "Þú ert yfir þig stressaður, það fer ekki á milli mála.
Farðu heim og vertu þar í nokkra daga og reyndu að ná þér."
Ég stökk niður og gekk út úr skrifstofunni.
Þegar samstarfskona mín (ljóskan) elti mig spurði stjóri hana hvert hún
væri eiginlega að fara. Hún sagði: "Ég er líka farin heim. Þú getur hreinlega ekki ætlast til þess af mér að ég vinni í þessu myrkri!"
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Ljóskur eru klárar Empty Re: Ljóskur eru klárar

Innlegg  Ágústa B 696 Sun Mar 30 2008, 15:26

Góður Very Happy Ég kann enga brandara svo að les þá bara hjá ykkur og hlæ.
Áfram með brandarana Wink
Ágústa B 696
Ágústa B 696

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum