Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

...........hmm....

+4
Steini 69
keilir
Ágústa B 696
Anna M nr 165
8 posters

Go down

...........hmm.... Empty ...........hmm....

Innlegg  Anna M nr 165 Mið Feb 24 2010, 14:38

Shocked pale affraid rabbit Neutral Wink Razz Very Happy Laughing
Þú hafðir kannski bara rétt fyrir þér systa mín að óska öllum gleðilegra jóla santa rendeer
Allavega er veðrið komið að norðan og austan. affraid
Vonandi verður óvissuferðin samt farin, gott að sitja í hlýrri rútu. cheers
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Ágústa B 696 Mið Feb 24 2010, 14:49

Það var nú allt ófært í dag vestur svo að þeir vestfirðingarnir fengu nú snjóinn sinn.

Veðurspáin segir nú ágætisveður á laugardaginn svo að maður verður bara ánægður með það Very Happy
Ágústa B 696
Ágústa B 696

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty snjór úti

Innlegg  keilir Mið Feb 24 2010, 14:52

Já nú er smá snjór en verður nokkuð úr þessu það held ég ekki, óvissuferðin verður farin snjórinn verður örugglega farinn þá. Eru ekki allir hressir bara í kvöld, er að hlusta með öðru eyranu á Kiljuna og finnst mér mjög gaman að honum fornbókasölumanninum o man ekki hvað hann heitir í augnablikinu, skemmtilegur karl. Svo er ég að reyna að klára bútasaumsjólateppið sem ég byrjaði á fyrir jól, já með ýmislegt í takinu, bara gaman. bounce
keilir
keilir

Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Ágústa B 696 Mið Feb 24 2010, 14:56

þú ert nú duglegri en ég í höndunum. Very Happy

Ég komin á sextugsaldurinn er að læra að prjóna LEISTA!!! Trúir þú því??

Er aldeilis ekki í mægðum við móður mína Embarassed
Ágústa B 696
Ágústa B 696

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Anna M nr 165 Mið Feb 24 2010, 15:00

Ágústa B 696 skrifaði:þú ert nú duglegri en ég í höndunum. Very Happy

Ég komin á sextugsaldurinn er að læra að prjóna LEISTA!!! Trúir þú því??

Er aldeilis ekki í mægðum við móður mína Embarassed

Hvurslags tal er þetta, lætur mann sjá fyrir sér eina gamla í ruggustól með svona lýsingum Razz No
Vantar samt þýðingu á mannamáli á neðstu setningunni hjá þér, ætla ekki að láta upp hvað ég las fyrst! tongue


Síðast breytt af Anna M nr 165 þann Fim Feb 25 2010, 00:53, breytt 1 sinni samtals
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Steini 69 Mið Feb 24 2010, 16:19

Já Bragi bókasali klikkar ekki í Kiljunni. Er svona svipað kaliber og Rooney eða hvað hann heitir í 60 minutes.
Er sko að muna fyrst núna hvaða dagur er. Þurfti að uppfæra auglýsingar og fór í það eftir Kiljuna.

Anna mín.... að vera ekki í mægðum við móður sína þýðir að vera ekki skyld henni móður sinni Very Happy

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Anna M nr 165 Fim Feb 25 2010, 00:58

Ok þá skil ég meininguna. Embarassed þótti góð í íslensku en hef bara ekki svo ég muni heyrt þetta orðalag. Embarassed
Núna í morgunsárið sést varla á milli húsa, en samt varla nokkur snjór. Smile
Mokaði smá frá barnavögnunum úti en það er allt. Myndi alveg þiggja að ekki yrði þetta meira. Rolling Eyes
Samt nýt ég þess að þurfa ekki "út" til að fara í vinnu. What a Face
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty hmmmm...

Innlegg  keilir Fim Feb 25 2010, 12:39

Já Bragi bóksali, það mætti halda að þessi karl væri yfir 100 ára gamall bara af því hann veit svo mikið og þekkti svo marga listamenn og marga umtalaða menn sem löngu er horfnir yfir móðuna miklu, hann kemur alltaf með eitthvað skemmtilegt og fróðlegt hann Bragi, og svo snýr hann tóbaksdósinni sinni á milli fingranna og tekur í nefið og snýtir sér, alveg afslappaður, frábær karl.
drunken Nú snjóar hann bara og snjóar, það hlaut að koma að þessu. Gott að vera inni í hlýju húsi og skella sér undir teppi, horfa á sjónvarpið og kíkja svo í bók. Farið vel með ykkur. Kv.Soffía
keilir
keilir

Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Elín og Daði nr. 39 Fim Feb 25 2010, 13:18

Þessi þáttur í sjónvarpinu sem heiti Kiljan er einn leiðinlegast þáttur sem er á dagskrá finnst mér. Bara þegar rætt er við Braga er þess virði að líta upp frá störfum fyrir félagið okkar. Alltaf nóg að gera hjá skemmtinefndinni ! Sleep Við erum búin að senda minnst 20 e-mail á fyrirtæki sem starfa í ferðaþjónustu og olíufyrirtækin og leita eftir vinningum. Þessi fyrirtæki svara bara ekki svo núna í kvöld ætlum við Elín að senda öll e-mailn aftur. Við fengum þó mjög jákvætt svar frá Víkurverk en neikvætt svar frá Icelandair (svaraði þó) Við erum einnig að undirbúa könnun sem við ætlum að senda á félagsmenn. Hafið það gott í kvöld sunny
Elín og Daði nr. 39
Elín og Daði nr. 39

Fjöldi innleggja : 58
Age : 66
Hvaðan ertu? : Mosfellsbæ
Registration date : 15/03/2009

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Anna M nr 165 Fim Feb 25 2010, 13:30

Hér er allt fullt af snjó, bóndinn sótti gröfuna og hreinsaði planið. Wink
Börnin sváfu inni, og ég sem mokaði frá vögnunum í morgun sá ekki annan kost en að taka þá inn, það fennti all hressilega utan um þá sem eftir voru úti. Surprised Manni bregður við, því bara fyrir 2 vikum í Hveragerði var ég í því að smala flugum út úr bílnum! Cool
Auðvitað veit maður að veturinn myndi koma um síðir og huggunin er að það eru bara 2 mán fram að vori, svo veturinn verður ekki langur í þetta sinn. sunny
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re....hmmmm

Innlegg  keilir Fim Feb 25 2010, 15:36

Já skemmtinefndi og ferðanefnd eru svo "aktíf" í sínum störfum og skipulögð, gott að hafa svona duglegt fólk með sér. Maður þarf töluvert að ýta á fyrirtæki til að fá svör kannast við þetta þegar við erum að safna auglýsingum í Félgatalið, ég hef bæði ýtt á eftir með pósti og stundum hringi ég og þá hrekkur fólk við, það gleymir sér oft. En þetta er vinna það er sko á hreinu því ekkert gerist af sjálfu sér.
Hugsið ykkur hér sunnan landa er búið að vera vorveður í janúar og það sem af er febrúar og maður var kominn í svona vorfíling, nú breytist það aðeins og nú er það Óvissufeðin á laugardaginn, ætli við lendum ekki bara í ævintýraferð en verður ekki veðrið gengið niður þa?? vonandi sunny sunny sunny Góða nótt
keilir
keilir

Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Ægir og Sigga Fös Feb 26 2010, 02:09

Látið ekki svona þó þið fáið smá hundslappadrífu þarna á Reykjavíkursvæðinu.
Það liggur við að það sé nóg að ná í strákústann og sópa samkvæmt myndum úr
borginni. Jú það dugar kannski ekki hjá honum Birni okkar í Borgarnesi, en hann er heldur ekkert að kvarta Very Happy Very Happy Very Happy - smá -
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga
Ægir og Sigga

Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Anna M nr 165 Fös Feb 26 2010, 02:20

Við bara látum víst svona, við reykvíkingar kunnum ekkert á svona snjóalög, maður kemst ekkert á bílnum, getur ekki labbað neitt og best er að halda sig innandyra undir teppi með kakó í bolla. Laughing
Það er satt að fólk kann sig ekki í "smá" snjó, pirrað ef þarf að skafa af bílum, kemst ekki leiðar sinnar snuðrulaust og fl. Mad
Þykir m.a.s. fréttnæmt ef færð spillist hér, enda orðið mjög langt síðan að snjórinn var hér á, frá ókt til feb Smile
Þið þarna fyrir austan hafið ekki séð flugu síðan í sumar, en það höfum við og já græn lauf líka. Cool sunny

Erfitt að slökkva á vorfílingnum þó dagatalið segi annað. Vona bara að þú náir bílnum þínum út Ægir fyrir verslunarmannahelgina lol!
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Ægir og Sigga Fös Feb 26 2010, 03:55

Jú takk, ég hef þá trú að ekki verði langt liðið á apríl mánuð að snjóa leysir hér á austurkantinum, þá verður Lína tekin út í vorið, það verður nú búið að heimsækja ykkur á suðvestur kantinum um versló. sunny sunny
,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga
Ægir og Sigga

Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Björn H. no. 29 Fös Feb 26 2010, 04:33

Ægir ekki kvartar Björn í Borgarnesi, finnst bara gaman að fá svona upprifjun, klæddi mig vel í gær og gekk í vinnuna. Cool
Dóttirin og hennar maður skiluðu sér eftir að hafa verið tvo tíma á leiðinni úr borg óttans, höfðu ekki lent í öðru eins sagði konan en bóndinn er gamalreyndur fjallamaður og hann sagði að þetta hefði verið leiðindaveður. Mad
Það hefði einhvertímann ekki þótt langur tími í ferð á milli þessa tveggja stórborga. Laughing
Í morgun hitti ég gamlan vinnufélaga úr keyrslunni en hann hafði verið á ferðinni í uppsveitum Borgarfjarðar í gær.
Einn bóndinn hafði orðið svolítið hissa þegar hann sá stærðar flutningabíl allt í einu fast við eldhúsgluggann, affraid en bóndinn sem á jeppa á 38“ hafði lagt af stað en hafði gefist upp fljótlega og þóst góður að komast til baka.
Já þessi dagur var bara ágætur og margar gamlar minningar sem runnu gegnum hugann.
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Steini 69 Fös Feb 26 2010, 05:44

Já það eru víða vandamálin!
Frú Helga festi SantaFe-inn þegar hún var að bakka hér útúr innkeyrlsunni áðan og bóndanum fannst nú heldur lítið til ökumannshæfileikanna koma. Ég hringdi svo í Econoline eiganda sem kom og kippti jepplingnum út. Svo renndi hann, atvinnubílstjórinn, í hjólförin og ætlaði að þjappa þau aðeins fyrir okkur en þar með var Econoline-inn fastur svo þetta snerist við og ég varð að kippa í Eccann. Very Happy

Þannig að sennilega kom þetta hæfileikum minnst við Embarassed Frúin hafði sko ætlað að taka þetta á siglingunni en bíll sem kom eftir Fossheiðinni hafði minni en engan áhuga á smá tillitssemi svo hún varð að stoppa í miðjum ruðningunum og þar með var draumurinn búinn.

Get ekki sagt að ég sakni hlákunnar, sem vonandi kemur fyrr en seinna!

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Helga 298 Fös Mar 05 2010, 06:32

hmmm.. já ég hélt að ég væri ekki svona klaufsk, þegar Ecolininn sat fastur fór mér að gruna að eftir lesturinn sem ég fékk væri ég bara þokkalegasti snjóbílstjóri Laughing
Helga 298
Helga 298

Fjöldi innleggja : 156
Age : 63
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 09/03/2008

http://www.tofraljos.com

Til baka efst á síðu Go down

...........hmm.... Empty Re: ...........hmm....

Innlegg  Sponsored content


Sponsored content


Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu


 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum