Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Börnin og ástin

Go down

Börnin og ástin Empty Börnin og ástin

Innlegg  Björn H. no. 29 Mán Des 14 2009, 04:44

Ástin og börnin
Varð að leyfa ykkur að njóta þess að skoða þetta !!!!

"Þegar maður verður skotin í ástfanginn, þá er það rosalega sárt og maður
getur meitt sig alveg fullt."
-Magnús 7. ára.
"Ég veit ekki alveg hvers vegna það eru svona margir ástfangnir,
en ég held það sé vegna þess að konur eru með ilmvatn og karlar rakspíra
og það er þá líklega vegna þess að þau ilma svo vel. Þess vegna seljast
ilmvötn svo mikið.
Mamma kaupir alltaf fullt þegar hún fer til útlanda og oftast fyrir pabba."
-Siggi 8. ára.

"Ég hef heyrt að ástin og að verða ástfanginn sé það mikilvægasta í
heiminum, en það er líka mikilvægt að Manchester United gangi vel!"
-Friðrik 8. ára.

"Strax á eftir þegar ég er búinn í leikskólanum ætla ég að finna mér konu."
-Tómas 5 ára.

"Mér finnst voða gaman að horfa á ástina, bara ekki á meðan Birta
og Bárður eru. Ég vil frekar horfa á þau."
-Helga 7. ára.

"Fyrst þegar kærustupar ferð út saman þá skrökva
þau alveg fullt að hvort örðu, en samt fara þau út aftur...og verða kannski
hjón?"
-Finnur 10. ára.

"Ég er með svolítið margar freknur, svo að konan mín
verður að hafa freknur líka."
-Andri 6. ára.

"mamma sagði að ég ætti að velja mér mann sem væri
glaður og myndarlegur."
-Katrín 8. ára.

"Æ, hættu að spyrja mig að þessu með ástina, ég fæ hausverk...
ég bara krakki og ég þarf enga ástina."
-Ragnar 7 ára.

"Ég ætla sko ekkert að flýta mér að verða ástfanginn.
Það er alveg nógu erfitt að vera í skólanum."
-Regína 10.ára.

"Mamma segir að karlmenn séu heilalausir. Hún er búin að
reyna að finna marga sem eru með heila en það gengur illa."
-Agnes 10. ára.

"Maður og kona lofa að fara í gegnum allt saman, líka Hvalfjarðagöngin."
-Ómar 7. ára.

"Ég ætla sko ekki að eignast börn! Eða jú kannski? En ekki að skipta um
bleyjur! Ég myndi bara hringja í mömmu og bjóða henni í kaffi til að fá hana
til að skipta um bleyjur."
-Kristín 10. ára

"Ástin er mjög asnaleg...en ég held ég verði
samt að prófa hana?"
-Sigrún 9. ára.

"Ástin finnur mann sko alltaf... jafnvel þótt þú reynir
að fela þig. Ég hef reynt að fela mig oft, oft, en alltaf finna stelpurnar
mig og verða skotnar í mér."
-Davíð 8. ára.
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum