53 nætur og alls ekki hætt
5 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
53 nætur og alls ekki hætt
Við hjónin erum búin að vera 53 nætur í Krema í sumar. Um síðustu helgi fórum við í útilegu suður til höfuðborgarinnar. Á föstudagskvöldið fórum við á tónleika með Ljótu hálfvitunum á Cafe Rósenberg. Lögðum Krema við Skúlagötuna og og gistum svo þar að loknum tónleikum. Um næstu helgi er síðan ferðinni heitið í stóðréttir í Húnavatnssýslu. Nótt nr. 54 og 55 Vel að sér vikið þykir okkur. Hvernig hefur sumarið verið hjá ykkur ? kv. Daði og Elín
Elín og Daði nr. 39- Fjöldi innleggja : 58
Age : 66
Hvaðan ertu? : Mosfellsbæ
Registration date : 15/03/2009
Re: 53 nætur og alls ekki hætt
Sumarið hefur verið okkur mjög skemmtileg, erum búin að vera 70+ nætur í bílnum, og ekki hætt enn
Þetta er algjör draumur að vera svona á ferðinni, nú fer maður að huga að nagladekkjunum, láta setja
þau undir svo hægt sé að halda þessu áfram framm á veturinn. Maður verður að vera með almennileg dekk
þegar allra veðra er von. Nú fer að verða fínt að vera á ferðinni, því það eru svo fáir sem eru að fara um
á veturna, bara yndislegt. Hlakka til að sjá ykkur á ferðinni.
Sniðugt að nota bílinn sem hótel í Reykjavíkinni. Gerum þetta þegar við erum að fara í matarboð svona hér og þar
í borginni, þá fer maður bara út í bíl þegar veislunni er lokið, bara sniðugt.

hafdísjúlía- Fjöldi innleggja : 212
Age : 67
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008
Re: 53 nætur og alls ekki hætt
Hæ, hæ. Við komumst ekki með tærnar þar sem þið eruð með hælana í gistinóttum.
Aðeins 38 nætur en svona er þetta bara. Sumarið er búið að vera mjög gott, allar ferðir góðar og við hitt gott og skemmtilegt fólk. En við ætlum að leggja bílnum núna og snúa okkur að öðrum viðfangsefnum og áhugamálum.
Við sjáumst samt vonandi af og til í vetur.
ps. Við höfum farið í Laugardalinn og gist þar ef við erum að fara í veislur eða leikhús, bara gaman og gott.

Sponni 447- Fjöldi innleggja : 38
Hvaðan ertu? : Grindavík
Registration date : 16/03/2008
Re: 53 nætur og alls ekki hætt
Veiðiskreppur er orðinn heldur einmana þarna úti á plani núna, höfum farið allar helgar síðan í vor og gott sumar búið að vera hjá okkur
Næturnar orðnar ca 65. Veit ekkert betra en að sofa í bílnum, maður þurfti að "venja" sig við að vera heima.
Stefnum á að fara af og til í vetur, enda bíllinn á góðum heilsársdekkjum, það helsta er, að allra veðra er von þessa dagana

Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: 53 nætur og alls ekki hætt
Sammála þér Anna, þetta að venja sig við hitt rúmið. Ég horfi út um gluggann og sé bílinn og hugsa: ohohh mikið væri gaman að fara þessa helgi, bara eitthvað út í bláinn.
En að öðru, gangi ykkur öllum vel á laugardaginn. Ég verð fjarri góðu gamni, verð samt í gamni. Ætla að passa eina 3ja ára prinsessu sem getur talað alveg úí eitt og dansar ballett og syngur fyrir ömmu.
En að öðru, gangi ykkur öllum vel á laugardaginn. Ég verð fjarri góðu gamni, verð samt í gamni. Ætla að passa eina 3ja ára prinsessu sem getur talað alveg úí eitt og dansar ballett og syngur fyrir ömmu.
Sponni 447- Fjöldi innleggja : 38
Hvaðan ertu? : Grindavík
Registration date : 16/03/2008
Áhöfnin á Bjarti.
Við hjónin á Bjarti erum komin með 52 nætur í bílnum það sem af er árinu, við leggjum ekki bílnum yfir veturinn, þannig að við getum alltaf skroppið út fyrir borgina ef veður er gott. Við heimsóttum marga staði í sumar sem við höfum ekki komið á áður, t.d. fórum við inn í Hólaskjól, yfir Hellisheiði eystri til Vopnafjarðar , Borgarfjörð eystri og fl.
Vorum á ferðinni nánast allar helgar og allt sumarfríið.
Það verður gaman að fylgjast með haustferðum félaganna hér á síðunni.
Vorum á ferðinni nánast allar helgar og allt sumarfríið.
Það verður gaman að fylgjast með haustferðum félaganna hér á síðunni.
Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Re: 53 nætur og alls ekki hætt
Mikið var fjörið í stóðréttunum fyrir norðan um helgina. Hitinn fór 4 gráður undir frostmark en inn í bílnum var 22 stiga hit fyrri nóttina. Eitthvað hafði nú verið átt við miðstöðina þannig að aðfaranótt sunnudags fór hitinn aðins í 11 gráður inn í bínum en ekki var nú okkur kalt. Það er alveg ótrúlegt hvað álfilman sem ég er búinn að setja í gluggana á framan yfir nóttina einangra mikið. Komnar 55 nætur. Kveðja, Daði og Elín
Elín og Daði nr. 39- Fjöldi innleggja : 58
Age : 66
Hvaðan ertu? : Mosfellsbæ
Registration date : 15/03/2009
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum