Þorlákshöfn kom á óvart.
2 posters
Spjall :: Húsbílar :: Tjaldstæði
Blaðsíða 1 af 1
Þorlákshöfn kom á óvart.
Mig langar að koma því á framfæri að tjaldsvæðið í Þorlákshöfn er alveg til fyrirmyndar, kom okkur reyndar mjög á óvart, en við fórum þangað á föstudagskvöld og vorum fram á sunnudag, mikið rok var og veðrið ekki til að hrópa húrra fyrir , en við gátum þó farið í gönguferð, góður göngustígur niður að sjó, og svo gátum við setið úti með kaffibollana ! Það stendur til að koma fyrir vatnsslöngu ( fyrir neysluvatn) og einnig salernislosun.
Nýleg sundlaug er alveg við tjaldsvæðið, fótboltavöllur og hlaupabraut fyrir þá sem stunda skokk. Og síðast en ekki síst þetta er útilegukortasvæði. kv. Gyða
Nýleg sundlaug er alveg við tjaldsvæðið, fótboltavöllur og hlaupabraut fyrir þá sem stunda skokk. Og síðast en ekki síst þetta er útilegukortasvæði. kv. Gyða
Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Re: Þorlákshöfn kom á óvart.
Sammála, tjaldsvæðið í Þorlákshöfn er til fyrirmyndar.
Við höfum verið nokkrum sinnum þarna og staðurinn hefur virkað vel á okkur, friðsæll og með öllu því sem húsbílaeigendur þurfa.
Sturturnar inni í íþróttahúsinu eru þær öflugustu sem ég hef kynnst.
Það eina sem mætti vera betra er að fá heitt vatn í vaskana á tjaldsvæðinu, smá mistök sem auðvelt er að bæta úr, annars bara til hamingju Þorlákshafnarbúar með gott tjaldsvæði.
Kveðja
Björn H.

Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Tjaldstæði
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum