Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Það bætist alltaf við en.....

+2
Oddný og Nonni
Anna M nr 165
6 posters

Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  Anna M nr 165 Mið Apr 15 2009, 15:08

Alltaf bætist við okkar skráningarlista, komnir vel yfir hundrað skráðir notendur Surprised
Voða fáir samt sem þora að tjá sig hér, og ég sem ætlaði að sitja hér og lesa umræðurnar, þar sem ég á erfitt með að pikka í kvöld Sad
Vill enginn segja hæ? Rolling Eyes Sad

jæja þýðir ekkert væl, svo ég spyr: Hvernig leggst komandi tíð í ykkur?
Ég hef á tilfinningunni að þetta verði gott sumar, þetta árið komnar 4 gistinætur, en við fórum í vetrarferð 1 nótt og svo 3 núna um páskana cheers
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 61
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Re: Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  Oddný og Nonni Fim Apr 16 2009, 14:34

Eg var að vinna í gærkvöldi svo ég kom ekkert inn á síðuna í gærkvöldi.
Ég er búin að vera að fylgjast með síðunni síðustu daga.
Hvar eru allir? Shocked
Oddný og Nonni
Oddný og Nonni

Fjöldi innleggja : 67
Registration date : 17/03/2009

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Re: Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  Ægir og Sigga Mán Apr 20 2009, 13:45

Já það er bara svona, 15. apríl s.l. var eitt ár frá því ég "innvígðist" hér á húsbílasíðuna, getur það verið ?, mér finnst svo stutt síðan,. Það er nú ekki svo langt síðan að ég sendi fyrstu vitleysuna hér inn. Hef bara haft gaman að þessu, kannski strítt einhverjum það verður að hafa það með . Vonandi verður gaman næsta árið einnig lol! .,,,, mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga
Ægir og Sigga

Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Hafði ekki "séð" þig...

Innlegg  Anna M nr 165 Mán Apr 20 2009, 13:59

Hélt bara að þú værir hættur Crying or Very sad En nú ertu að segjast ætla vera næsta árið, gott með það því þín yrði nú bara saknað hérna með þitt glens og fleira Razz Laughing
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 61
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Tíminn líður hratt á gervihnattaöld.

Innlegg  Björn H. no. 29 Mán Apr 20 2009, 15:16

Það hefur oft verið gaman á spjallinu og svo er margt sem verður að teljast fróðleikur sem hefur komið fram hjá spjallverjum.
Oft hefur mér fundist gaman að metingi okkar Ægis Laughing um kost okkar svæða og við erum vonandi eftir að hittast og fallast í faðma eins og góðir bræður, helv. er maður að verða hátíðlegur. Embarassed
Myndagáturnar bæði skemmtilegar og fræðandi, núna logar allt af samstöðu um að láta ekki tjaldsvæðaeigendur ræna ferðafólk.
Tjaldsvæði erlendis kosta oft svipað og hérna minnir mig en það er mikill munur á gæðum og oft þjónustunni.
Við eigum að styðja við Útilegukorti og þá þróast þetta allt í rétta átt öllum til hagsbóta. cheers
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Re: Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  hafdísjúlía Mán Apr 20 2009, 15:52

Já rétt er það Björn við eigum að styðja við kortið, en það verður nú væntanlega bara þannig að í sumar verður fullt á öllum tjaldstæðum sem erum með kortið, og þess vegna tel ég að við sem fjöldahreyfing eigum að reyna að hafa áhrif á þá staði sem eru að selja inn og reyna að fá lækkun, eða allavega ekki hækkun. Eins og maður sér með tjaldstæðið í Hveragerði
það er mjög gott að koma þangað og stutt að fara fyrir marga, en að ætla að hækka frá því í fyrra það er mjög fúlt.
Það verður til þess að færri húsbílaeigendur koma þangað í sumar. Einhver var að tala um að það væri gjald fyrir ellilífeyrisþega
sem er eitthvað lægra, núna er ég ekki komin á þann aldur svo það er spurning um að húsbílafélagið semji um að allir húsbílaeigendur fái á því verði (ellilífeyrisþega verði) , væri það ekki sniðugt að semja um það t.d. ÉG skal alveg borga með glöðu geði, ef það er bara sanngirni í verðlagningunni. Umræðan t.d. um rafmagnið, við erum jú að nota ca fyrir 100 kall, en auðvitað viljum við hafa staurana og það kostar að koma þeim upp og endurnýja þá, svo ókey við skulum borga meira en 100 kall til þess að niðurgreiða uppsetninguna, en 650 kr. það er rán um hábjartan daginn.
hafdísjúlía
hafdísjúlía

Fjöldi innleggja : 212
Age : 66
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Re: Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  Elín og Daði nr. 39 Mán Apr 20 2009, 18:54

Við á Krema fórum norður í Húnavatnssýslu um sl. helgi og eru því næturnar orðnar 7 núna í vor. Við gistum fyrst á Hvammstanga á planinu hjá vinum en á laugardag héldum við í Vatnsdalinn þar er við fundum lund við lítinn læk sem við settum okkur niður og gistum þar með litla 3 ára ömmusnúðinn með okkur. Lentum reyndar í hávaða roki undir Hafnarfjalli (31 m. í kviðunum) og á Kjalarnesinu í gær á leið heim. Næsta verkefni er að kaupa viðikortið og nýta sér nýja möguleika á gistiaðstöðu. Bíllinn er svo góður að maður þarf ekkert á rafmagni né öðru að halda sem íboði er á tjaldstæðunum. Kíkið í Vatnsdálinn þegar þig farið norður. Hann er bara flottur og fullt af stöðum til að stoppa og njóta náttúrunnar. Kv. Daði og Elín
Elín og Daði nr. 39
Elín og Daði nr. 39

Fjöldi innleggja : 58
Age : 65
Hvaðan ertu? : Mosfellsbæ
Registration date : 15/03/2009

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Re: Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  Björn H. no. 29 Þri Apr 21 2009, 00:16

Góð hugmynd Hafdís, fáum stjórnina til að ræða við staðarhaldarann í Hveragerði, stutt að fara fyrir marga, við Þóra myndum að vísu frekar fara í bústaðinn þegar við værum á þessum slóðum.
Annar er vinalegur staður við ströndina ekki langt frá Stokkseyri sem ég hef verið á og alveg til í að vera þar oftar.
Ef tjaldsvæðin sem tilheyra Útilegukortinu verða alltaf full í sumar ættu okkar félagar að kynnast og líka ættum við að kynnast félögum okkar í öðrum félögum.
Hef trú á að sumarið verði vendipunktur fyrir þá sem hafa samið við Útilegukortið og næsta sumar þar á eftir fjölgi tjaldsvæðunum sem verða með. Basketball
Hafdís hvernig gengur með það sem við ræddum um, þú mátt alveg senda mér línu milliliðalaust.
Saeunnargata@simnet.is

Elín og Daði þið takið þetta með trompi, komnar 7 gistinætur. Sleep
Við Þóra höfum gist í Vatnsdalnum og þar eru margir fallegir staðir og innst í dalnum þar er notalegt að vera.
Ef þið hefðuð farið fyrir Vatnsnesið þá er vinalegur staður alveg við sjóinn rétt fyrir neðan veginn við hliðina á fjárrétt.
Kremi er betri í rokinu við Hafnarfjall en pappakassarnir sem við erum mörg að nota. affraid
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Re: Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  hafdísjúlía Þri Apr 21 2009, 02:57

Ekki hefði ég boðið í Draumakot í veðurhamnum á sunnudaginn.
Við fórum á Þórisstaði og vorum þar í yndislegu veðri á föstudaginn en fórum heim á laugardag þegar við heyrðum af veðurspá. Enda eins gott miðað við lætin, á leið heim sáum við nokkra félaga sem höfðu komið sér fyrir hist og her í Hvalfirði, svo það eru þónokkrir komnir af stað og fara ekkert endilega mjög langt frá Reykjavík, en eins og framm hefur komið þá erum við engum háð, erum með Wc, rafmagn, hita, svo við getum verið hvar sem er.
hafdísjúlía
hafdísjúlía

Fjöldi innleggja : 212
Age : 66
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Það bætist alltaf við en..... Empty Re: Það bætist alltaf við en.....

Innlegg  Sponsored content


Sponsored content


Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum