Benedikt smá spurningar til þín.
2 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Benedikt smá spurningar til þín.
Þar sem þú ert á Hólmavíkursvæðinu, hvað vötn eru það sem þú mælir með veiði? T.d Kjalarvatn á Drangsnesi?
Veit um tvö önnur vötn sem ég man ekki hvað heita, en frí veiði er í öðru þeirra.

Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Benedikt smá spurningar til þín.
Mikið um vötn í nágreni við Hólmavík. Kjalarvatn í því var veiði, ofar á Bjarnarfjarðarhálsi í Bæjarvötnum er veiði. Upp á miðjum Bjarnarfjarðarhálsi eru Urriðavötn veiði þar en ekki fært fyrir húsbíla, en ég á ágætis jeppa sem ég get lánað ykkur ef ég kæmi ekki bara með.
Þiðriksvallavatn var þar í haust og fékk 2 bleikjur og einn urriða.
Hróbergsvatn þar er bleikja svo eru vötn upp á Steingrímsfjarðarheiði sem veiði er í.
Í þessi vötn er ekki selt í en fengið leyfi, sem væri auðvelt fyrir okkur Signýju að fá fyrir ykkur.
Á haustin eftir 1. Ágúst er góð veiði í flestum ám á þessu svæði og held að það kosti ekki mikið get athugað það ef þið viljið (bændur selja sjálfir stangir) Staðará, Selá og Bjarnarfjarðará. Svo hefur verið þorskur hér við hafnarminnið undanfarin ár kemur yfirleitt í maí –júní. Verið þið velkomin og látið okkur aðstoða ef við getum.

Takk fyrir góð svör, það er ekki að spyrja um höfðingjamóttökur frá ykkur hjónum
Þarna komstu með vötnin tvö sem ég gat ekki munað nöfnin á. Þiðriksvallavatn og Hróbergsvatn, hafði lesið um þau og leist vel á. Kjalarvatnið seldi veiðileyfi í denn með eldisfisk, er það enn við lýði?
Takk fyrir rausnalegt boð og auðvitað myndi maður vilja ykkur með.
Þarna komstu með vötnin tvö sem ég gat ekki munað nöfnin á. Þiðriksvallavatn og Hróbergsvatn, hafði lesið um þau og leist vel á. Kjalarvatnið seldi veiðileyfi í denn með eldisfisk, er það enn við lýði?
Takk fyrir rausnalegt boð og auðvitað myndi maður vilja ykkur með.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Benedikt smá spurningar til þín.
Veit ekki til þess að veiðileyfi hafi verið seld í Kjalarvatn. Fyrir nokkrum árum voru seld leyfi í tjörn sem í var eldisfiskur, en er hætt í dag, þessi tjörn var á Ásmundarnesi sem er í Bjarnarfirði.
Gleymdi að segja þér að í Skeljavík er veiddur silungur (úr sjó) á stöng, einnig hefur slæðst með einn og einn stærri fiskur.
Gleymdi að segja þér að í Skeljavík er veiddur silungur (úr sjó) á stöng, einnig hefur slæðst með einn og einn stærri fiskur.
Re: Benedikt smá spurningar til þín.
Já alveg rétt, nú man ég Ásmundarnesatjörn var hún kölluð
Aldeilis nóg úrval af veiðimöguleikum, og takk fyrir allar upplýsingarnar og þín góðu boð.
Gaman væri að fá verðin í árnar, spennandi að fá að renna þar og út í sjó. Væri þá að spá í vikunni eftir versló eða einhverja helgi eftir það jafnvel í haust.
Aldeilis nóg úrval af veiðimöguleikum, og takk fyrir allar upplýsingarnar og þín góðu boð.
Gaman væri að fá verðin í árnar, spennandi að fá að renna þar og út í sjó. Væri þá að spá í vikunni eftir versló eða einhverja helgi eftir það jafnvel í haust.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum