Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Veiðiskreppur og við....heppin.

2 posters

Go down

Veiðiskreppur og við....heppin. Empty Veiðiskreppur og við....heppin.

Innlegg  Anna M nr 165 Fim Mar 19 2009, 12:31

Það voru 4 unglingspiltar að snuðrast hérna í fyrrakvöld í kringum bílskúrana, svo ég fylgist með og bið þess að þeir labbi sér bara framhjá bílnum okkar.
Svo stoppa þeir og skipta um stefnu og fara framan við bílskúralengjuna og við endann stoppa þeir og eru heillengi þar á bakvið. Ég bíð þolinmóð, svo koma þeir og einn þeirra labbar að pallbíl sem lagt er upp við næstu skúralengju og baukar þar heillengi, er á milli skúrs og bíl.
Svo heyri ég þetta svaka ískur, svona eins og að hann hafi rennt lykli eftir bílnum og hinir góla á hann hvað hann væri eiginlega að gera. Svo draga þeir hann burt og labba sína leið. Þarna var búið að hvarfla að mér að taka mynd af þeim, en gerði það ekki, en hefði betur gert það því gaflinn á skúrunum okkar er allur rispaður og sennilega er pallbíllinn líka rispaður Sad Hef ekki séð þennan pallbíl aftur, en við prísum okkur sæl að þeir fóru ekki framhjá Veiðiskreppi, því það hefur verið klippt á loftnetið áður. Evil or Very Mad Twisted Evil
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veiðiskreppur og við....heppin. Empty Re: Veiðiskreppur og við....heppin.

Innlegg  Steini 69 Fim Mar 19 2009, 12:51

Ótrúlegt hvað það er mikið af illa innréttuðu liði alltaf á sveimi. Ég hef alltaf bíl/bíla hérna fram á kantinum fyrir framan lóðina hjá okkur og síðan er gangstéttin á milli. Og maður er alltaf jafn þakklátur að bílarnir hafi ekki verið skemmdir í öll þessi ár. Að vísu var stolið einu krómmerki af gamla econolæninum en það er það eina að mig minnir.

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veiðiskreppur og við....heppin. Empty Re: Veiðiskreppur og við....heppin.

Innlegg  Anna M nr 165 Fim Mar 19 2009, 13:20

Við fengum að heyra frá granna að heilu húddi var stolið af bílnum hjá honum einu sinni. Það var spennt upp og skrúfað af um hábjartan dag, einn sem fékk ekki húdd á partasölu. Shocked
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veiðiskreppur og við....heppin. Empty Re: Veiðiskreppur og við....heppin.

Innlegg  Sponsored content


Sponsored content


Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum