Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Það má brosa af þessum.

Go down

Það má brosa af þessum. Empty Það má brosa af þessum.

Innlegg  Björn H. no. 29 Fös Feb 13 2009, 08:36

Ótrúlega falleg rauðhærð kona mætir til læknis og segir að sig verki allstaðar í líkamanum. Læknirinn trúir henni ekki og biður hana um að sýna sér. Hún tekur til við að pota með vísifingri hingað og þangað í líkamann á sér í hvert skipti öskrar hún uppyfir sig af verk. “Þú ert með litað hár er það ekki”, spyr læknirinn. Hún jánkara því. “Þú ert nefnilega puttabrotin”.

Menntaskólakennari hafði nýlokið við að útskýra ritgerðarefni fyrir nemendum sínum. Allir ættu að skila á réttum tíma, og engar afsakanir væru teknar gildar. Mesti gæinn í bekknum rétti upp höndina og spurði:”En hvað ef maður er gjörsamlega búinn eftir geggjað kynlíf?” Kennarinn leit ekki einu sinni upp og svaraði:
“Ég býst við að þú þurfir þá bara að læra að skrifa með hinni hendinni.”

Gamall kemur til læknis og vill fá að vita hvort hann sé enn frjór. Læknirinn lætur hann hafa krukku og biður hann um að koma aftur á morgun með sæðissýnishorn.
Daginn eftir kemur hann með krukkuna tóma. Læknirinn er undrandi og spyr hvernig hafi staðið á þessu.
“Jú fyrst reyndi ég með hægri, svo með vinstri allt kom fyrir ekki. Svo reyndi konan mín með hægri og svo vinstri, meira að segja með munninum. Þá leituðu við til nágrannakonu okkar, hún reyndi með hægri svo með vinstri og munninum og þetta bara gekk ekki.”
“Ha, fékkstu nágrannakonu þína til að hjálpa þér!”, spyr læknirinn alveg undrandi
“Já, við bara gátum ekki opnað helv. krukkuna” sagði gamli maðurinn þá.
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum