Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

höfuðverkurinn sem hvarf.

Go down

höfuðverkurinn sem hvarf. Empty höfuðverkurinn sem hvarf.

Innlegg  Björn H. no. 29 Þri Mar 18 2008, 07:58

Kona ein kom heim til sín og sagði við eiginmanninn; “Veistu að höfuðverkjakösin sem ég hef verið að fá undanfarin ár eru alveg horfin”. “Hvað segiru, hvað gerðist?” spurði maðurinn.
“Hún Magga ráðlagði mér að fara til dáleiðara og hann sagði mér að standa fyrir framan spegil, stara á sjálfa mig og endurtaka; Ég hef ekki hausverk, ég hef ekki hausverk. Og ég hef ekki fengið höfuðverk síðan. Þetta virkaði svona æðislega vel.”
“Þetta er frábært, þetta er æðislegur árangur.” Sagði maðurinn. Þá sagði eiginkonan; “Þú hefur ekki verið neinn orkubolti í rúminu síðustu árin. Af hverju drífur þú þig ekki til dáleiðarans og athugar hvort hann geti ekki gert eitthvað fyrir þig svo þetta lagist?” Eiginmaðurinn samþykkti að prófa og eftir heimsókn til dáleiðarans kom hann heim og þreif konuna í fangið, reif hana úr fötunum og bar hana inní svefnherbergi, lagði hana í rúmið og sagði “Bíddu smá, ég verð enga stund”. Svo fór hann inná baðherbergi og kom til baka stuttu seinna og seinni ástarleikurinn með konunni var enn betri en sá fyrri og annað eins hafði eiginkonan ekki upplifað árum saman.
Konan settist upp í rúminu en eiginmaðurinn sagði þá; “ Ekki hreyfa þig, ég kem eftir smá” og svo dreif hann sig aftur inná baðherbergið. Konan var forvitin og læddist á eftir honum og sá að hann stóð fyrir framan spegilinn og endurtók í sífellu, “Hún er ekki konan mín, hún er ekki konan mín, hún er ekki konan mín.”
Jarðarför hans fer fram næsta föstudag
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum