Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Jónasar sögur

Go down

Jónasar sögur Empty Jónasar sögur

Innlegg  Björn H. no. 29 Þri Jan 27 2009, 23:30

Jónas var staddur í lyftu í stóru og fallegu húsi í borginni við sundin og var á leiðinni upp. Þegar hann var kominn nokkrar hæðir upp, stoppaði lyftan og forkunnarfögur dama gekk inn. Jónas fann að hún var með dýrt ilmvatn og hafði notað mikið af því. Stúlkan tók eftir því að hann var
að nasa út í loftið og sagði með nokkrum þjósti "Romance frá Ralph Lauren, 15.000 krónur glasið." Stuttu seinna stoppaði lyftan aftur og inn gekk önnur fegurðardís með mikið ilmvatn. Hún sá að Jónas var að þefa, svo hún leit niður til hans og sagði "Chanel No. 5, 20.000 krónur únsan."
Um það bil þrem hæðum seinna stoppaði lyftan þar sem Jónas ætlaði út.
Áður en hann fór út úr lyftunni, horfði hann í augun á stúlkunum, blikkaði augunum, beygði sig fram, rak við og sagði "Bakaðar baunir frá Heintz, 128 krónur dósin."


Jónas og Guðmundur voru komnir langt - langt - langt fram yfir eftirlaunaaldurinn og voru úti á rúntinum á gamla blöðruskódanum hans
Jónasar. Hvorugur gat séð almennilega yfir mælaborðið, svo að þeir óku nú ekkert sérlega hratt, gömlu mennirnir. Eftir smá tíma komu þeir að gatnamótum og um leið og þeir fóru yfir gatnamótin, velti Guðmundur, sem sat í farþegasætinu, fyrir sér: "Hmmm, ég hlýt að vera að missa sjón eða eitthvað. Mér fannst endilega að það væri rautt ljós". Nokkrum mínútum seinna komu þeir aftur að gatnamótum og bíllinn rann yfir þau viðstöðulaust. Í þetta sinn var Guðmundur næstum algerlega viss um að þeir hefðu farið yfir á rauðu, en hann var ekki alveg hundrað prósent viss og það gat verið að ellin væri að hrekkja hann, svo hann sagði ekkert.
Í staðinn ákvað hann að bíða átekta og taka vel eftir á næstu gatnamótum. Á næstu gatnamótum var eldrautt ljós á móti þeim, en Jónas hægði ekki einu inni á sér, heldur ók bara sitt strik yfir gatnamótin á móti rauðu. Þá gat Guðmundur ekki á sér setið lengur, enda þetta stórhættulegt, og sagði: "Heyrðu, Jónas, veistu að þú ert búinn að fara yfir þrjú rauð ljós í röð. Þú hefðir getað drepið okkur!" Jónas sneri sér til hans og sagði: "Ó, er ég að keyra"?
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum