Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Næst þegar þú ætlar að nota einnota Latex hanska þá er ekki annað hægt en að brosa þegar þú heyrir það sem hér fer á eftir:

Go down

Næst þegar þú ætlar að nota einnota Latex hanska þá er ekki annað hægt en að brosa þegar þú heyrir það sem hér fer á eftir: Empty Næst þegar þú ætlar að nota einnota Latex hanska þá er ekki annað hægt en að brosa þegar þú heyrir það sem hér fer á eftir:

Innlegg  Helga 298 Fös Jan 23 2009, 09:07

Tannlæknirinn tók eftir að litla gamla konan sem var næst í stólinn hjá honum var ansi kvíðin svo hann ákvað að segja henni smá brandara til að róa hana.

Hann setti á sig hanskana og spurði um leið hvort hún vissi hvernig svona hanskar væru búnir til.

Nei sagði hún.
Jæja hélt hann áfram,
það er verksmiðja í Kanada sem er með stóran fullan tank af Latex efni og verkamennirnir þar dýfa höndunum í tankinn með efninu, láta svo efnið þorna og fletta síðan af sér hönskunum og láta þá í kassa merkta viðkomandi stærð.

Gömlu konunni stökk ekki bros.
Jæja það mátti reyna, hugsaði tannlæknirinn.
Fimm mínútum seinna á meðan viðkvæmur hluti tannaðgerðarinnar stóð yfir, fór gamla konan að skellihlæja.
Hvað er svona skemmtilegt sagði tannlæknirinn.

Ó! Ég fór allt í einu að velta fyrir mér hvernig smokkar væru búnir til.
Helga 298
Helga 298

Fjöldi innleggja : 156
Age : 62
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 09/03/2008

http://www.tofraljos.com

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum