Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Einn Góður

Go down

Einn Góður Empty Einn Góður

Innlegg  Helga 298 Mið Nóv 26 2008, 14:37

Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum.
Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á
öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og
nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af
þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.

Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti
sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir
nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð
hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír
á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.

Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem
lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná
skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð
svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja
upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.

Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni staddur
niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í
poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á
skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að
setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann
er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá”
Helga 298
Helga 298

Fjöldi innleggja : 156
Age : 62
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 09/03/2008

http://www.tofraljos.com

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum