Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Til sölu ódýr ferðabíll - 16/6 SELDUR

Go down

Til sölu ódýr ferðabíll - 16/6 SELDUR Empty Til sölu ódýr ferðabíll - 16/6 SELDUR

Innlegg  Steini 69 Lau Mar 08 2008, 20:53

Viðbót(13.mars) Lét setja nýtt aftara pústið og nýjan rafgeymi í hann í dag og lét skoða hann 2009!

Til sölu er SX-168, Ford Econoline XL 350 Club Wagon ferðabíll árg. 1988, ekinn 68 þúsund mílur.
Bíllinn er nýskoðaður(í mars. 2008), allt nýtt í bremsum að aftan, frambremsur teknar fyrir ári síðan.
Verð kr. 450.000 -

Aðeins nánar um bílinn
Mig minnir að ég hafi keypt hann árið 1992, en þá var hann ekinn 52þ mílur. Vélin er V-8 351 Efi. Varð fyrir því óláni að fá vatn inn á lofthreinsarann, árið 1996 og skemmdi þá vélina. Hún var því gerð upp frá grunni af Bifreiðaverkstæði Helga Schiöth á Akureyri og var bæði blokk boruð(0,30), renndur ás(0,10), skipt um stimpla, legur, kambás, lyftur, tímagír, olíudælu og bara allt innvols keypt nýtt í vélina. Þannig að vélin er ekin rúmar 8 þúsund mílur frá þeirri uppgerð.

Bíllinn er sjálfskiptur, afturdrifinn með Dana 60 hásingu og fljótandi öxlum og sverarara pústi. Og að sjálfsögðu með vökvastýri

Er á krómfelgum(orðnar áfallnar) og breiðari dekkjum, með stigbrettum, húddhlíf, stigi að aftan, vindskeið aftan, hliðarhandföngum, original dökklituðu gleri, allar rúður opnanlegar og með orginal krómumgjörð.

Bíllinn er orginal búinn tveimur 80 lítra bensíntönkum með rofa í mælaborði til að víxla á milli tanka.

Innréttingin
Það eru geymslurými undir bekkjum og rúmfatageymsla að aftan. Borðið er vandað felliborð og nýtist þegar búið er um rúmið en þá eru sessur og bök nýtt sem rúm og sofið er þversum. Góðar dýnur í sessum og bökum.

Góð 2x60cm skápeining úr alvöruefni með vaska(rafvatnsdæla sem virkjast þegar skrúfað er frá krana) og stór vatnstankur undir bílnum sem fyllt er á í hurðargatinu bílstjóramegin. Skápurinn er tvískiptur með miðhillu en skúffur til hliðar og efsta skúffan er hnífaparaskúffa.

Í bílnum er aukalega 2ja hraða gasmisðstöð með termostati, gaskútur fylgir. Sér útvarp og segulband er afturí en vandað Kenwood CD/Radio framí. 40 rása CB talstöð, slökkvitæki.

Tveir brún plusaðir captain stólar, með armpúðum, á snúningi framí sem sjá til þess að maður kemur óþreyttur á afangastað. Góð aukahilla yfir vélarhlíf svona fyrir kristalinn og fleira - Bíllinn lítur vel út að innan, og er ekki sjúskaður.

Til sölu ódýr ferðabíll - 16/6 SELDUR Eco1
Til sölu ódýr ferðabíll - 16/6 SELDUR Eco2

Fleiri myndir er að finna á Vefsíðu bílsins - www.husbill.com

Allar nánari upplýsingar gefur Steini í síma 893 5804 og/eða 482 3929
Einnig er hægt að senda okkur póst á steini@husbill.com
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum