Sumarið sem hvarf og fl.
3 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Sumarið sem hvarf og fl.
Hvað varð um allt góða veðrið sem hefur leikið við okkur síðustu mánuðina, það bara hvarf á einni nóttu og haustrigningarnar tóku við með tilheyrandi veseni.
Var Steini búinn að mála eða þarf hann að vera með regnhlíf og vatnshelda málningu til að klára viðhaldið.
Hún er ótrúleg frásögnin af manninum sem tíndi bílnum sínum og hefði orðið úti ef smalamenn hefðu ekki komið honum til bjargar á síðustu stundu.
Siðurinn að veifa fólki á húsbílum er af hinu góða og félagarnir ættu að halda þessum sið á lofti, það styrkir samheldnina, vöruflutningabílstjórar og fleiri hafa lengi haft þennan hátt á.
Erlendis er það mjög algengt húsbílafólk veifi.
Það er lærdómsríkt að fylgjast með umræðunni um efnahagsmál og hvernig græðgin hefur farið með þjóðir heims.
Ætli við lærum eitthvað af þessu eða verður þetta eins og hið pólitíska minni okkar, allt gleymt í næstu kosningum.
Allt sem fer upp það kemur niður stendur einhverstaðar og þar hefur ekkert breyst, sama hvað verðbréfaguttarnir segja og gera.
Við hjónin erum búin að koma bílnum í vetrargeymslu og ósköp er notalegt að vita af bílnum í upphituðu húsi þessa dagana.
Við ætlum að skreppa til Spánar núna í vikunni og leiðsögutækið er komið í töskuna enda er ætlunin að ferðast svolítið um.
Vonandi verður fjörugt á spjallinu í vetur og við dugleg að láta í okkur heyra, nóg er af efni til að ræða.
Fáum ferðasögur, þær eru alltaf skemmtilegar.
Ræðum hagsmunamál félagsins.
Það má alveg ræða þjóðmál, bara að vera ekki of viss og passa stóru orðin.
Svo er hægt að ræða nýjungar í húsbílum endalaust, þar er alltaf að koma fram nýir hlutir og ný tækni.
Húsbílasalar ættu að vera duglegir að fræða okkur um nýjungar.
Hættur þessu rausi í bili og farin í sólina, það eru að vísu tveir dropar sýndir fyrir Alicante.
Kveðja Björn H. 29

Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Sólin sýndi sig þó.
Aðeins í dag létti til og sú gula sýndi sig Maður bara orðinn vanur suddanum. En vonandi verður ekki skortur á sólinni hjá ykkur þarna úti. Komið svo sólbrún og hress og lyftið upp spjallinu með okkur í vetur.
Það er einmitt málið með almennar umræður, þær eiga vera almennar Um allt milli himins og jarðar, ekki bara húsbílamál. Vonandi verður fólk virkara þegar bílunum verður lagt.

Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Sumarið sem hvarf og fl.
Sæl veriði!
Já það er sko ekki búið viðhaldið á Fossheiðinni hjá okkur ennþá... LAngt komin með málninguna þegar það fór að rigna... var búinn að skipta um annan gluggann en hinn er ennþá í og þarafleiðandi er ekki enn búiða að klára múrverkið á þeim vegg þar sem það þarf að múra að nýju gluggunum... tómt vesen. En koma´tímar koma ráð... í dag er veðrið til staðar en enginn tími og svona ganga bara hlutirnir fyrir sig stundum. Smiðurinn sem ætlar að glerja húsið komst ekki í það á réttum tíma vegna tafa og síðan þurfti hann að bregða sér bæjarleið til spánar svo þetta er allt saman að verða nett æfing í æðruleysi og þolinmæði
Svo kíktu Kristján og Hafdís (þ.e Draumakotsgengið) í heimsókn í gær og það espaði enn meir upp ferðafílinginn:D En semsagt ég vildi að það væri komið vor aftur
Kv. Steini

Haustið hvarf líka!
Það kom bara vetur á okkur þessa helgina, hef aldrei upplifað það að vera í lokaferð í frosti og snjó
Lá við bara að jóla fílingur gerði vart við sig, eða allavega við brennuna sem var afskaplega skemmtileg
Ferðin var ánægjuleg og margir komu örugglega hátt í 80 bíla ef ekki meira
Við hjónin þökkum fyrir góða helgi og vonum að allir hafi það gott.
Lá við bara að jóla fílingur gerði vart við sig, eða allavega við brennuna sem var afskaplega skemmtileg
Ferðin var ánægjuleg og margir komu örugglega hátt í 80 bíla ef ekki meira
Við hjónin þökkum fyrir góða helgi og vonum að allir hafi það gott.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum