Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Er þetta akkurat eins og það á að vera :)

Go down

Er þetta akkurat eins og það á að vera :) Empty Er þetta akkurat eins og það á að vera :)

Innlegg  Helga 298 Fim Sep 18 2008, 05:28

Mamma og pabbi sátu við sjónvarpið.

Mamma segir: Ég er þreytt, og klukkan orðin margt. Ég ætla að fara

upp í rúm. Hún fór inn í eldhús og útbjó nesti fyrir börnin, tæmdi

poppkornsskálina, tók kjöt úr frysti fyrir næsta dag, gáði hvað væri

eftir af kornfleksinu í pakkanum, fyllti á sykurkarið, setti sykur og

skeiðar á borðið og gerði kaffikönnuna tilbúna.


Svo setti hún nokkur föt í þurrkarann, setti þvottavélina af stað,

straujaði eina skyrtu og festi eina tölu. Hún tók saman dagblöðin sem

lágu á gólfinu.

Hún safnaði saman nokkrum leikföngum sem lágu á borðinu, og setti

símaskrána niðu í skúffu, svo vökvaði hún blómin, tók úr

uppþvottavélinni og hengdi eitt handklæði upp svo það myndi þorna.


Hún stoppaði við skrifborðið og skrifaði miða fyrir skólann, setti

peninga á borðið fyrir börnin og tók upp eina bók sem lá undir stól.

Hún skrifaði eitt afmæliskort til vinkonu sinnar, setti frímerki á. Svo

skrifaði hún minnismiða og lagði við hliðina á dagbókinni sinni.


Svo fór hún að þvo sér, setti á sig næturkrem, burstaði tennurnar og

greiddi sér.

Pabbin hrópaði úr stofunni; ég hélt að þú værir að fara að sofa.

Já, sagði hún og hellti vatni í hundadallinn, og setti köttinn út. Gekk

úr skugga um að dyrnar væru læstar. Loks kíkti hún á börnin og talaði

við eitt þeirra sem enn var að læra. Í svefnherberginu stillti hún

vekjaraklukkuna, tók til föt fyrir morgundaginn, tók rúmteppið af

rúminu.

Enn skrifaði hún 3 atriði á minnismiðann.

Á sama tíma slökti pabbinn á sjónvarpinu og sagði við sjálfan sig; nú

fer ég að sofa - og það gerði hann.


TIL HEIÐURS MÁNUÐI KVENNA - SENDU ÞETTA TIL 5 KJARNAKVENNA (bara ef

þú hefur tíma... ha)



PS
Svo eru kallarnir hissa að við sofnum strax þegar við sjáum koddann okkar.
Helga 298
Helga 298

Fjöldi innleggja : 156
Age : 63
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 09/03/2008

http://www.tofraljos.com

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum