Stóra ferðin.
4 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Stóra ferðin.
Nú hefur verið talað um að erfitt sé fyrir marga bíla að vera í einni halarófu um landið. Á eitthvað að skipuleggja þetta betur? Hef aldrei farið í stóru ferð en langar með núna í ár. Þið sem hafið farið, voruð þið ekki ánægð með hvernig var haldið utan um hlutina?
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 61
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Stóra ferðin.
Tek undir þetta með Önnu og Jóni... væri gaman að heyra frá þeim sem reyndari eru í þessu.
Re: Stóra ferðin.
Steini, hversu "ný" eruð þið hjónin? Hafið þið farið í einhverjar ferðir? Við erum að byrja 5 árið og höfum alltaf farið í hvítasunnuferð, lokaferð og einhverjar milliferðir.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 61
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Stóra ferðin.
Við erum úr kassanum bara... gengum í félagið seint í haust og keyptum okkur VIÐHALDIÐ í nóvember svo við höfum aldrei ferðast með félaginu og á gamla bílnum fórum við alltaf bara á einhvern þvæling einbíla svo við erum "splúnkuný"
Kv. Steini og Helga 298
Kv. Steini og Helga 298
Re: Stóra ferðin.
Hvernig líst þér á ferðirnar sem eru planaðar í sumar? Já og eitt sem ég vil spyrja þig, hvernig set ég upplýsingar í undirskrift? Það er bara ég sem skrifa, en vil nú samt ekki að minn maður "gleymist" þó tölvufatlaður sé, hehe.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 61
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Stóra ferðin.
Mér líst ágætlega á þetta... stóð til að fara norður hvort eð var... tvær þessara ferða(Fljótshlíð og Minni Borg) eru mjög stuttar fyrir okkur og litlu meira en að fara skreppa útá bílastæði en við bara kát með þetta...
Vona að þetta leiði þig í gegnum þetta... - Kv. Steini
Vona að þetta leiði þig í gegnum þetta... - Kv. Steini
Re: Stóra ferðin.
Takk fyrir, vonandi virkar þetta hjá mér
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 61
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Stóra ferðin spennandi.
Við hjónin höfum aldrei farið í stóru ferðina og langar mikið til að fara í sumar, kynnast félögunum, og að sjálfsögðu landinu
Við erum búin að vera í félaginu í 3 ár, en ekki farið í margar ferðir, við erum í öðrum ferðaklúbbi, og þar eru 3 skipulagðar ferðir yfir sumarið og þær hafa oft verið á sama tíma og Húsbílafélags-ferðirnar. En í sumar langar okkur að vera með og vonum að það rætist.

Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Undirskriftin virkar.
Steini, takk fyrir aulaleiðbeiningarnar Segir þú svo að sumar ferðirnar séu stuttar fyrir ykkur Ekkert mál, þú mætir fyrstur, tekur frá pláss fyrir okkur hin sem eru búin að kynnast á spjallinu Nei er bara að grínast, en er það bara ekki félagsskapurinn sem skiptir máli? Við hjónin búum í Seljahverfi í RVK og höfum farið og gist í bílnum við sumarbústað hjá foreldrum mínum við Elliðavatn Svo styttri ferð er varla að finna
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 61
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Stóra ferð
Nú er ég komin í stuð að svara held þetta sé bara að virka hjá mér!!!
Við hjónin höfum farið í nokkrar þessarar svokölluðu ´"Stóru ferð" og alltaf jafn gaman og það var alltaf farið í halarófu þar til í fyrra, reyndar var farið í halarófu fyrsta daginn en það bara gekk ekki upp þar sem þetta er orðinn svo stór félagsskapur. bílarnir eru orðnir svo margir að þetta teppir þá sem eru að keyra á sömu slóðum og við og eru að flýta sér, þó svo það hafi verið að reyna að fylgjast með því að hleypa fram úr sér. Og ég held að þetta verði ekki reynt aftur heldur fari fólk bara af stað þegar það vill og hittist svo á næsta áfangastað. En það var viss sjarmi að vera svona í halarófu og yfirleitt var leiðsögumaður sem sagði frá staðháttum og einhverju skemmtilegu og fróðlegu sem hafði gerst á þeim stöðum sem farið var hjá og var sá maður í bíl hjá formanni og talaði í talstöðina þar og þeir sem voru með talstöð gátu fylgst með, en það var ekki alltaf gott samband svo þetta eru bæði kostir og gallar. Mér líst bara vel á ferðirnir í sumar og vonandi kemst maður í sem flestar en eitthvað stangast þetta á við vinnu bóndans þar sem hann er vaktavinnumaður og þá er bara að skoða hvort ekki sé hægt að taka frí...Þú talar um að stutt sé fyrir ykkur að fara Steini í Fljótshlíðina og Minni Borg, kostur líka eins og ein sagði að þú getur verið fyrstur og fengið besta stæðið... Við hjónin höfum farið hér út á Garðskaga og gist þar ekki nema 7km leið en þetta er líka bara félagsskapurinn ef maður er þá að leita eftir því. Já maður er manns gaman
B.kv.Soffía Keili 24

keilir- Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008
Grindavík.
Litli ferðahópurinn okkar hefur nokkrum sinnum farið í Grindavík, og verið þar á tjaldsvæðinu, sem reyndra er verið að breyta eitthvað núna, byggingar komnar nálægt gamla stæðinu, en í Grindavík er margt að sjá, t.d. er gaman að skoða Saltfisksetrið sem er alveg einstaklega skemmtilegt og bara ganga um höfnina og fl. já það þarf ekki að fara langt, og það er félafsskapurinn sem skiftir öllu.
Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Undirskrift prufa
er að reyna að koma inn undirskrift
Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Húrra það tókst !!
Það er sem sagt bara að gefast ekki upp, ekki erfiðara en það
Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
|
|