Var að kaupa bíl...
2 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Var að kaupa bíl...
Nei ekki ég sko.... heldur Lalli og Jóna, vinir okkar í þarnæsta húsi: - Þau keyptu sér heillega Peugeot lágþekju árgeð 1992, með Chausson yfirbyggingu, þetta er bíll með öllu og fengu hana á fínu verði. - Þannig að það er ekki ólíklegt að húsbíla beri eitthvað á góma hjá okkur félögunum á næstunni...(ekki það að þau málin séu aldrei rædd á heimilinu) en allavega við óskum þeim bara til hamingju með gripinn og hlökkum til að þvælast með þeim.
Kv. Steini
Kv. Steini
Peugeot lágþekja.
Er þetta fyrsti bíllinn þeirra? Ef svo er, þá velkomin í hópinn! Það gildir einu hvort bíllinn er eldri Peugeot eða glænýr tólfmilljóna Bens. Það er ferðagleðin sem skiptir öllu máli. Það er hægt að fá óendanlega ánægju útúr húsbílnum sínum, alveg sama hverrar gerðar hann er. Átti einmitt í dag skemmtilegt samtal við sölumann Ferðavals við Vesturlandsveg um kosti og galla fram-og afturhjóladrifsbíla og sýndist sitt hvorum. Allt að einu verður húsbíllinn svona nokkurs konar ferða-og sálufélagi manns með tímanum, ekki bara bíll heldur eitthvað miklu meira og merkilegra. Aftur hamingjuóskir til nágrannanna með nýja bílinn. GTh.
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum