Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Sumt er ekki hægt að útskýra.

Go down

Sumt er ekki hægt að útskýra. Empty Sumt er ekki hægt að útskýra.

Innlegg  Björn H. no. 29 Lau Jún 14 2008, 02:34

Bóndi situr á þorpsbarnum og er frekar fullur, þegar maður kemur inn og
spyr bóndann;
"Hei, af hverju situr þú hérna á þessum fallega degi útúrdrukkinn?"
Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Nú hvað gerðist svona rosalegt?"
Bóndinn:"Nú ef þú þarft að vita það... Í dag var ég að mjólka kúnna mína
og sat við hliðina á henni. Um leið og fatan varð full, sparkaði beljan
fötunni niður með vinstri fætinum.
Maðurinn: "Nú það er ekki svo rosalegt, hvað er svona mikið mál við það?

Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Nú hvað gerðist næst?"
Bóndinn: "Ég tók vinstri fót hennar og batt hann við stólpann á básnum
með reipi. Svo settist ég niður og mjólkaði. Um leið og fatan var að
verða full. Sparkaði beljan í hana með hægri fætinum og velti henni líka.
Maðurinn: "Aftur?"
Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Hvað gerðirðu þá?"
Bóndinn: "Ég tók þá hægri fótinn og batt hann líka við stólpa á básnum."
Maðurinn: "Og hvað gerðirðu þá?"
Bóndinn: "Ég settist niður og hélt áfram að mjólka hana, og um leið og
fatan var að verða full þá velti helvítis beljan fötunni niður með halanum..."
Maðurinn: "Vá þú hlýtur að hafa verið orðið pirraður þá?"
Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Og hvað gerðirðu næst?"
Bóndinn: "Sko...ég hafði ekki meira reipi svo ég tók af mér beltið og
batt þannig halann á henni upp. Akkúrat þá, duttu niður buxurnar mínar
niður og konan mín gekk inn."
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum