Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Fertugar konur +

2 posters

Go down

Fertugar konur + Empty Fertugar konur +

Innlegg  Björn H. no. 29 Fös Jún 13 2008, 16:31

Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og hér eru
nokkrar ástæður hversvegna:
Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig
"hvað ertu að hugsa?"
Hún kærir sig kollótta um hvað þú ert að hugsa. Ef kona yfir fertugt
vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir
eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en
leikurinn. Konur yfir 40 eru virðulegar. Þær fara sjaldan í
öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað. Auðvitað
gera þær það ef þú átt það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig
ef þær halda að þær komist upp með það. Eldri konur eru örlátar á
hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að
verðleikum. Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að
viðurkenna misbresti þína fyrir þeim. Þegar þú getur litið framhjá
einni eða tveimur hrukkum, er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en
yngri kynsystur hennar. Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja
þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft
aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær. Já, við dásömum
konur yfir fertugt af mörgum ástæðum. Því miður er það ekki
gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu
yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum
gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu. Konur, ég biðst
afsökunar. Til allra þeirra karla sem segja; "Af hverju að kaupa kúna
þegar þú getur fengið mjólkina frítt" hér eru nýjar upplýsingar; Nú
á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum Hversvegna? Vegna þess að
konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín
þótt þær langi í smá pulsu!
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Fertugar konur + Empty Re: Fertugar konur +

Innlegg  Steini 69 Fös Jún 13 2008, 16:41

Amm.... Very Happy
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum