Handverk á ferðlögum
5 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Handverk á ferðlögum
Ég hef tekið eftir því á myndum að það eru settir upp söluborð með allskonar handverki, er þetta eitthvað sem er alltaf ?
Handverk
Ég veit ekki mikið um þetta en ég held að það séu oftast markaðir..Þetta er yfirleitt auglýst fyrir hverja ferð. Þú kemur auðvitað með allt þitt á næsta markað?
Ágústa B 696- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008
Aldrei að vita
en gætir þú lánað mér lestina þína, þarf tvo eða þrjá húsbíla til að taka lagerinn með en að öllu gamani slepptu jú ég verð örugglega með eitthvað af kertum og sýnishorn af ýmsu öðru sem ég er að selja með kertunum.
Alltaf markaður.
Já það er vaninn að félagsmenn komi með vörur sínar og selji á markaði. T.d verður markaður á Hlöðum, allavega í stærri ferðunum. Þar kennir ýmissa grasa allt frá bakstri, handverki allskonar og græjur fyrir bílana. Einnig er félagið sjálft með húsbílavörur. Þetta er með skemmtilegustu mörkuðum sem ég stunda.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Handverk
Hæ, þar sem var verið að spyrja um hvort félagar væru að selja handverk þá er það gert og alltaf í hvítasunnuferðinni, í stóru ferðinni, lokaferðinni og ef aðstæður leyfa, veðrið gott eða verið með hús, þá eru oft settir upp básar. Svo er félagið sjálft að selja vörur sem eru merktar félaginu, íslenska fánanog félagsfánann og flíspeysur sem eru með merki félagsins og margt margt annað. Svo ef þú ert með handverk Helga þá er um að gera að koma með það.
B.kv.Soffía Keili no.24
B.kv.Soffía Keili no.24
keilir- Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008
Takk Soffia
fyrir þessar upplýsingar, jú ég er víst svona handverkskella, og er með kertagerðina Töfraljós - ilmkertagerð svo það væri gaman að sýna ykkur það sem ég er að bardúsa. og sjá hjá öðrum er sko ekki leiðinlegt. Hef voða gaman af að fylgjast með hvað aðrir eru að gera í handverki, en hef alltof lítinn tíma að undaförnu að líta upp úr kertunum .
Þetta er bara smá sýnishorn af því sem ég hef til sölu í kertum, allt eru þetta ilmkerti og svo er ég með reykesli og ilmjurtir og bara nefndu það þá er hugsanlegt að ég sé með það.
Þetta er bara smá sýnishorn af því sem ég hef til sölu í kertum, allt eru þetta ilmkerti og svo er ég með reykesli og ilmjurtir og bara nefndu það þá er hugsanlegt að ég sé með það.
Vá...
Það verður gaman að skoða kertin hjá þér í sumar Ég er bara strax farin að hlakka til.
Sæborg492- Fjöldi innleggja : 2
Registration date : 22/03/2008
Re: Handverk á ferðlögum
Takk já það verður gaman að sýna ykkur þau. og eins eru þið velkominn hér til okkar á Fossheiðina að kíkja á okkur, ef þið eruð á ferðinni.
kær kv. Helga
kær kv. Helga
Handverk
Góðan daginn gott fólk.
Helga þetta er aldeilis flott hjá þér, þú setur upp bás um hvítasunnuna nóg er úrvalið sýnist mér, þetta verður gaman að sjá.
Það er gaman að fylgjast með spjallinu en mætti vera meira, ég verð að játa að ég hef ekki veið dugleg að skrifa inn, en er samt að kíkja, íslenska forvitnin..... En hvað segir fólk almennt farið af stað í helgarreisur? Við hjónin erum ekki farin að koma okkur af stað ennþá, einhver leti í manni. Gaman að heyra ferðasögur tek undirþað
Kv.Soffía. Keili
Helga þetta er aldeilis flott hjá þér, þú setur upp bás um hvítasunnuna nóg er úrvalið sýnist mér, þetta verður gaman að sjá.
Það er gaman að fylgjast með spjallinu en mætti vera meira, ég verð að játa að ég hef ekki veið dugleg að skrifa inn, en er samt að kíkja, íslenska forvitnin..... En hvað segir fólk almennt farið af stað í helgarreisur? Við hjónin erum ekki farin að koma okkur af stað ennþá, einhver leti í manni. Gaman að heyra ferðasögur tek undirþað
Kv.Soffía. Keili
keilir- Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008
Re: Handverk á ferðlögum
Ætli fyrsta ferð hjá okkur verði ekki bara að Hlöðum Sumir eru ekki alveg búnir með verkin sín fyrir bílinn svo að ég vona að frítíminn verði notaður í þágu Mánadísarinnar Of kalt úti til að vinna ,af hverju eigum við ekki risabílskúr frekar en "frímerki"?
Ágústa B 696- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008
Ekki alltaf handverk.
Stundum er líka til sölu eitthvað ætilegt, t.d harðfiskur, kleinur, og fl.
Hvernig litist ykkur á að fá að kaupa ykkur reyktan silung og jafnvel flatkökur?
Hvernig litist ykkur á að fá að kaupa ykkur reyktan silung og jafnvel flatkökur?
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Handverk á ferðlögum
nammi namm.. elska reyktan fisk.. og ég tala nú ekki um flatkökur.. ég sakna þess að geta ekki gert mínar eigin, gerðið þetta alltaf í sveitinni og við reyktum líka fiskin sjálf, bjó við Hvítána í Árnessýslu.
Er alltaf með lager..
Á þvílíkt mikið af reyktum fiski í frysti í lok sumars Fyrir utan okkur hjónin þá er yngstan okkar sjúk í fiskinn með graflaxsósu á ristuðu brauði, gef helling en samt er alltaf eitthvað afgangs að vori
Svo byrjar maður veiðina og alltaf of mikið til
Við systur vorum að ræða það í fyrra að koma nú með reyktan fisk frá okkur, reyktan í Mývatnssveit og heimagerðar flatkökur að austan, og mæta á markaðinn í ferðunum
Svo byrjar maður veiðina og alltaf of mikið til
Við systur vorum að ræða það í fyrra að koma nú með reyktan fisk frá okkur, reyktan í Mývatnssveit og heimagerðar flatkökur að austan, og mæta á markaðinn í ferðunum
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Handverk á ferðlögum
Líst vel á það og hlakka til að fá fiskinn og fegin að heyra að flatkökurnar eru að austan, sko Akureyringar gera þær allt of sætar,
Helga mín.
Þú skalt fá fisk og flatköku, ég lofa! Hlakka virkilega til að hitta ykkur hjónin á ferðinni í sumar
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum