Hér er rólegt.
2 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Hér er rólegt.
Það er rólegt yfir spjallinu þessa dagana, fólk í vorverkum eða að sinna viðhaldinu.
Í dag lögðu sex af ferðafélögum okkar hjónanna frá í fyrra af stað í næstu ferð.
Stefnan tekin á Hanstholm og síðan niður Danmörk og áfram til Þýskalands og kannski eitthvað lengra, fer eftir veðri, kannski skoða þau eitthvað af því sem Valberg er að segja okkur frá en það er frábært að fá svona góða frásögn og myndirnar, maður bara slefar.
Allur gróður í Borgarnesi er mun fyrr á ferðinni en síðasta sumar, allt orðið grænt og margir búnir að slá fysta slátt, ekki garmurinn ég.
SH 894 rann í gegnum skoðun og núna bíður maður eftir því að húsmóðirin fari að tína út í bíl kryddið og aðrar slíkar nauðsynjar, allt mitt er klárt og vonandi kemst maður fljótlega í fyrstu ferð sumarsins.
Kveðja
Björn H. 29

Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Hér er rólegt.
Sæll félagi!
Ja það er allavega nóg að gera á þessu heimilinu og eiginlega allt of mikið
Það stóð til að múra í kringum nýju bílskúrshurðina í sumar og áttu það að verða einu framkvæmdir sumarsins. Síðan átti bara að hafa það þokkalega rólegt og ferðst og dúllast.
En nú er Fossheiðin útlítandi eins og austur-þýzk blokk, sem meira að segja hústökufólk hefur yfirgefið, og allt útlit fyrir að húsið verði með þessu kommúnistalúkki fram á sumar. Því eftir að við ákváðum að láta laga einn gafl á húsinu var þetta eins og gjarnan vill verða þegar maður asnast til að mála, þ.e að þegar búið var að múra versta vegginn,,, ja þá voru hinir orðnir mun ljótari... svo það var ákveðið að fara allan hringinn. Og eftir að sú ákvörðun var tekin og múrarar komnir á svæðið og byrjaðir... þá kom í ljós að þeir eru sko að fara til Rhodos um helgina og verða í hálfan mánuð
Þeir voru þó svo almennilegir að lána mér bara verkfæri og segja mér hvað skyldi brjóta burt svo þetta yrði auðveldara fyrir þá þegar þeir kæmu úr fríinu. Mikið skemmtilegt... en ég hef þó rúmar tvær vikur í þetta ógeð svo það hlýtur að hafast þó maður burri eitthvað um helgar
Kv. Steini

Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum