Eurovision-helgin.
+2
Steini 69
Gyða og Jói 591
6 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Eurovision-helgin.
Jæja þá er það hin mikla Eurovision helgi, hvert ætlar fólk að stefna um helgina ?
Áfram Ísland !
Áfram Ísland !
Gyða og Jói 591- Fjöldi innleggja : 47
Hvaðan ertu? : Kópavogi
Registration date : 09/03/2008
Re: Eurovision-helgin.
Mér skilst á minni... að það verði ekkert farið um helgina. Frúin er semsagt að fara á eitthvert FKA skrall á föstudagskvöldið og mér var bent kurteislega á það, eftir að Ísland klomst áfram, að 15" sjónvarp dyggði sko ekki fyrir Eurovision
En aðallega er allt á hvolfi hjá okkur...menn að múra húsið og ég að brjóta steypu... fræsa múr og mála.
En vonandi geturm við þó skroppið eitthvað eins og eina nótt!
Kv. Steini
En aðallega er allt á hvolfi hjá okkur...menn að múra húsið og ég að brjóta steypu... fræsa múr og mála.
En vonandi geturm við þó skroppið eitthvað eins og eina nótt!
Kv. Steini
Re: Eurovision-helgin.
Við stefnum á Selfoss á föstudaginn í útskriftarafmæli hjá Dísu mágkonu,síðan er ekki ákveðið hvert halda skal annað en að við förum norður á sunnudagskvöldið.
helgarferðin
Við erum á leið norður í land um helgina svo ég vonast til þess að maður sjái til sólar þar
miðað við að eyða allri þessarri olíu þangað.
Gangi ykkur vel í múrbroti.
Góða helgi
miðað við að eyða allri þessarri olíu þangað.
Gangi ykkur vel í múrbroti.
Góða helgi
hafdísjúlía- Fjöldi innleggja : 212
Age : 67
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008
Re: Eurovision-helgin.
Hafdís Júlía nr. 868 skrifaði:Við erum á leið norður í land um helgina svo ég vonast til þess að maður sjái til sólar þar
miðað við að eyða allri þessarri olíu þangað.
Gangi ykkur vel í múrbroti.
Góða helgi
Er verið að þvælast í Heiðardalinn? - Það var sko alveg óþarfi að flýja norður þó við væum í múrbrotinu... það stóð ekkert til að níðast á ykkur - Já það yrði allavega ekki ónýtt að vera fyrir austan um helgina og reyndar fram í vikuna... spáð allt að 27 stiga hita í Hallormstað...
Já ég væri sant sko alveg til í að skipta við einhvern... gæti vel hugsað mér að burra eitthvað frekar en að standa í svona stórræðum svo ef einhvern langar frekar til að skafa og skera uppúr sprungum, skrapa, mála og þetta viðbjóðslega allt saman... þá er bara að hafa samband
Góða helgi!
Baaaraaa heima.
Eða næstum því Förum í stúdentaveislu, og svo keppnin um kvöldið, áfram ÍSLAND
Svo var fyrrverandi nágranni að hringja og bjóða okkur í sunnudagskaffi í Kópavoginn
Annars reynir maður að nýta helgina í vorverkin á húsinu.
Svo var fyrrverandi nágranni að hringja og bjóða okkur í sunnudagskaffi í Kópavoginn
Annars reynir maður að nýta helgina í vorverkin á húsinu.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Barasta bara heima.
Sumir í sólinni og aðrir að puða.
Skrapp á Selfoss í dag og ók götuna hjá Steina og Helgu en þorði ekki að hægja á bílnum, aldrei að vita nema boðið yrði í múrbrot eða annað í þeim dúr.
Rafmagnssnúrur og vinnupallur blöstu við njósnaranum, gangi þér vel Steini minn og vonand tekur þetta viðhald ekki jafn mikinn tíma og hitt viðhaldið er búið að gera undanfarnar vikur.
Hvað segir Helga við öllu þessu viðhalds veseni sem er á þér?
kveðja
Björn H. 29

Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Eurovision-helgin.
Ja hérna... sá einmitt útundan mér einhvern húsbíl burra hérna suður götuna í dag... það hefði nú ekki sakað að kíkja í bolla... hefðum verið tillitssöm við þig svona nýkominn af Hótelinu
Helga er bara bærilega sátt við þessi viðhaldsverkefni bæði tvö... ekki viss um að hún yrði hinsvegar hrifin ef ég bætti því þriðja við
En endilega að kikja við gott fólk ef þið eruð á ferðinni... alltaf til kaffi og svo er það gott með tímann... að það kemur alltaf meira af honum svo... velkomin!

Nei Steini, ég var ekki á húsbílnum, tími ekki að nota hann enn og því læt ég hann standa heima svo Borgnesingar geti dáðst að gripnum sem Guðni segir að sé annar besti húsbíll landsins.
Við hjónin vorum á hinni Kóreu gerðinni, Kia Sorento kom eftir að við höfðum prófað Santa fe, báðir góðir eins og þú veist.
Ég var alinn upp við það að það ætti ekki að trufla vinnandi menn og síst þegar verið er með rándýra iðnaðarmenn í vinnu.
Voru ekki allir sáttir við söngvakeppnina og okkar fólk?
kveðja
Björn H. 29
Við hjónin vorum á hinni Kóreu gerðinni, Kia Sorento kom eftir að við höfðum prófað Santa fe, báðir góðir eins og þú veist.
Ég var alinn upp við það að það ætti ekki að trufla vinnandi menn og síst þegar verið er með rándýra iðnaðarmenn í vinnu.
Voru ekki allir sáttir við söngvakeppnina og okkar fólk?
kveðja
Björn H. 29
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum