Enn hækka lítrarnir...
5 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Enn hækka lítrarnir...
Jæja nú er bensín/olía orðið ansi hátt, er ekki að verða komið nóg?
Hvað er hægt að gera? Allir að mótmæla og fá ríkið til að afnema/minnka skattaálögur??
Endar með því að maður fái sér mótorhjól með hliðarvagni fyrir kallinn Og tjald og græjur í kerru aftan á
Hvað er hægt að gera? Allir að mótmæla og fá ríkið til að afnema/minnka skattaálögur??
Endar með því að maður fái sér mótorhjól með hliðarvagni fyrir kallinn Og tjald og græjur í kerru aftan á
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Enn hækka lítrarnir...
Með þessu áframhaldi verður minna um keyrslur um landið
Við getum víst lítið gert nema að keyra minna meðan verðið er svona hátt!
Ég skal vara viðstödd með myndavélina þegar sumir eru komnir á hjól
Við getum víst lítið gert nema að keyra minna meðan verðið er svona hátt!
Ég skal vara viðstödd með myndavélina þegar sumir eru komnir á hjól
Ágústa B 696- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008
Re: Enn hækka lítrarnir...
Já mér þætti gaman að fá þær myndir, sérstaklega þegar þau búa sig upp í rigningu og hann undir dúk með kaffið og hefur það næs en hún að berjast í vindinum og rigningunni, já það myndi nú ekki væsa um hann Jón í kerrunni spurning hvernig Anna kæmi út úr þessu. Annars fannst mér alltaf skemmtilegt á hestbaki í rigningu vel gölluð.
Re: Enn hækka lítrarnir...
Ja... verður ekki bara meira virði að burra eftir hækkanirnar - En að öllu gamni slepptu þá er þetta að verða nett rosalegt og sér sko ekki fyrir endann á hækkununum.
Kv. Steini
Kv. Steini
Enn hækkar dropinn
Sjálfsagt má gera ráð fyrir að fólk ferðist minna þetta sumarið, allavega gefur litla skoðanakönnunin á spjallinu það til kynna.
Það verður trúlega eitthvað framar í forgangsröðinni en ferðalög hjá mörgum.
En þjóðin hefur áður séð mótbyr og það er svo gott fyrir sálina að ferðast, við ættum að gera það sem við getum hvert og eitt til að brjóta upp hverstaksleikann og njóta sumarsins.
Það er alls ekki allt fengið með því að þeytast landshluta á milli, þegar maður fer að skoða sitt heimahérað er alltaf hægt að finna eitthvað nýtt og spennandi.
Kveðja
Björn H. 29

Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Enn hækka lítrarnir...
Þetta er svo rétt hjá þér, Björn, svo held ég líka að fólk fari kannski ekki sjaldnar, heldur fer á einn stað og stoppar lengur.Björn Hermannsson nr 29 skrifaði:Sjálfsagt má gera ráð fyrir að fólk ferðist minna þetta sumarið, allavega gefur litla skoðanakönnunin á spjallinu það til kynna.
Það verður trúlega eitthvað framar í forgangsröðinni en ferðalög hjá mörgum.
En þjóðin hefur áður séð mótbyr og það er svo gott fyrir sálina að ferðast, við ættum að gera það sem við getum hvert og eitt til að brjóta upp hverstaksleikann og njóta sumarsins.
Það er alls ekki allt fengið með því að þeytast landshluta á milli, þegar maður fer að skoða sitt heimahérað er alltaf hægt að finna eitthvað nýtt og spennandi.
Kveðja
Björn H. 29
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Enn hækka lítrarnir...
Sæl veriði.. og takk fyrir síðast! - Ég mældi eyðsluna á Viðhaldinu að gamni þar sem einhver hafði sagt mér að þessar elsku væru svo sparneytnar:-) Eyðslan reyndist vera 11,19 lítrar á hundraðið og hefur hann þó fengið að ganga ansi oft svona án þess að vera á ferðinni... Svo ég get ekki kvartað yfir því. Ég sé því fram á það að verða að burra heil ósköp til að græða á allri sparseminni... enda Viðhöldin oftast ódýrari í rekstri en...
Flott helgi að baki og við alsæl og vorum einmitt á netinu áða að reyna að panta meira dót
Kv. Steini
Flott helgi að baki og við alsæl og vorum einmitt á netinu áða að reyna að panta meira dót
Kv. Steini
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum