Spjall
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

4 posters

Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Mið Maí 07 2008, 06:19

Ok við keyptum okkur miða í happdrætti í vetur og fengum úthlutað númerinu 1 98 98.(og reyndar fengið 2 litla vinninga nú þegar:-) - Við gengum í Félag Húsbílaeigenda og fengum úthlutað númerinu 298 - Við keyptum okkur Útilegukort og fengum úthlutað númerinu 1298 - Svo keyptum við okkur svona Nova - Net í punginn og númerið í pungnum endar á 98.

Og nú er svo komið að maður er farinn að horfa í kringum sig eftir tölunum Very Happy En allavega... enn sem komið er hefur talan reynst okkur vel en er samt svolítið skondið. Skyldi maður verða 98 ára? Very Happy -

PS: Var minntur kurteislega á það að við Helga hefðum sko byrjað saman "98 líka Embarassed


Síðast breytt af Steini 298 þann Mán Maí 12 2008, 12:51, breytt 1 sinni samtals (Reason for editing : Ámintur!)
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Skondið.

Innlegg  Anna M nr 165 Mið Maí 07 2008, 16:42

En ég trúi sko á svona, við erum á svipuðum nótum en hjá okkur er það tölurnar 28 og 21. Very Happy
Alveg merkilegt hvað maður hittir á sömu tölurnar aftur og aftur Very Happy
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Mið Jún 11 2008, 19:16

Sko... Fengum happdrættisvinninga á báða "98 miðana okkar núna í júní. Segi það og skrifa.. þetta eru happatölur Very Happy

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Ágústa B 696 Fim Jún 12 2008, 15:38

Til lukku með vinningana!!

Ég væri alveg til í að eiga lukkunúmer Crying or Very sad
Þú verður að fara með þetta í blöðin eins og fjölskyldan sem átti númerið 21. Allir í fjölskyldunni eiga afmæli þann 21. og þessar tölur eru alls staðar í kringum frúna Very Happy
Verst að talan 98 eru ekki á lottoseðlinum Very Happy
Ágústa B 696
Ágústa B 696

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Hvað er með þessa tölu 98

Innlegg  Björn H. no. 29 Fim Jún 12 2008, 15:54

Var að hugsa um ykkur, happatöluna og pestina sem herjaði á ykkur.
Ef ég man rétt þá þótti það gott að dreyma skít hér áður fyrr og mátti gera ráð fyrir peningum eftir slíkar draumfarir.
Hérna lendi ég í vandræðum þið fáið skítapest og svo segið þið okkur frá peningavinningum, ætli það sé búið að breyta formúlunni, þannig að það sé ekki nóg að láta sig dreyma, en til hamingju með vinningana og töluna 98 sem virðist vera hrein gullnáma
Vonandi eruð þið orðin góð af pestinni svo þið getið farið að njóta lífsins og eyða einhverju af gullinu.
Kveðja
Björn H. 29
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Fim Jún 12 2008, 19:14

Sæl veriði! Já það er ekki eins og einhver vanþörf sé á peningum hjá okkur þessa dagana... verið að gera við húsið og það litla sem til var fyrir... fór í annað Viðhald Embarassed En það er gaman að þessu og þetta kom sér virkilega vel. Og já pestin er loks á enda og maður finnur vel fyrir því þessa dagana ... verið að vinna upp syndirnar frá því í síðustu viku í tölvuviðgerðum og þvíumlíku og síðan er það kertapökkun og fleira á morgun og kannski kemst ég svo í eitthvað múrbrot líka svo allavega verður ekki sagt að maður liggi bara í sólbaði og útilegum þessa helgina.

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Alltaf gott að fá aur.

Innlegg  Anna M nr 165 Fös Jún 13 2008, 11:23

Til lukku lol!
Það er engin smá heppni með þessari tölu Smile Fáið ykkur lottó með tölunum 9 og 8 og samtölunni 17 og setjið svo afmælisdagsetninguna ykkar beggja, alveg viss um að þið fáið á þær Very Happy
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Fös Jún 13 2008, 11:48

Sæl vertu! - Ja ég er sko með eina röð í áskrift og það eru tölur sem ég var alltaf að gaspra um að yrðu vinningstölurnar hér í den. Sagði oft við guttann minn að ég vissi sko alveg hvaða tölur ynnu og þuldi þessar tölur svo aft í gamni... að þær festurst í kollinum á mér. Hef reyndar aldrei fengið meira en 3 rétta á þær en er sannfærður um að þær gefa á endanum Very Happy

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Veit ekki hvaða tölu ég þarf til að detta í lukkupottinn

Innlegg  Björn H. no. 29 Fös Jún 13 2008, 15:45

Jæja talnasnillingar, getið þið ekki hjálpað mér um réttu töluna svo ég geti dottið í lukkupottinn líka, það hlýtur að vera pláss fyrir fleiri.
Ég greyið vinn aldrei neitt enda þarf víst að kaupa miða til að eiga möguleika.
Anna, hvaða upplýsingar þarftu til að finna út hvaða tölur passa fyrir mig.
kveðja
Björn H. 29
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Ætti ég?

Innlegg  Anna M nr 165 Þri Jún 17 2008, 17:17

Þær upplýsingar skaltu bara hafa fyrir þig Björn minn, þetta gætu verið tölur tengd aldri, fæðingarári, afmæli húsnúmeri hvað sem er í rauninni Very Happy Hjá mér var það bara óvart hvað tölurnar 21 og 28 komu oft upp hjá mér, en kannski ekki furða því tölurnar eru afmælisdagar okkar mæðgna hér á bæ.

Þínar lottótölur eru þær sem þú færð út úr þessum 5 atriðum, og ég mana þig að kaupa eina röð.

Nú skaltu bara pæla í hvaða húsnúmer er þér kærast, hvaða manneskju þykir þér vænst um, og nota þá dagsetninguna yfir afmælisdaginn, hver var besti aldurinn undir 40 ára, samtala fjölda barna hjá þér og síðast hvað þú hefur átt marga bíla.
Vittu nú hvaða lottó-röð þú eignast. I love you
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Þri Jún 17 2008, 18:00

Ég vona Björns vegna að hann hafi ekki átt eins marga bíla og ég um æfina... enda eingöngu tveggja stafa tölur í boði í lottóinu Embarassed
En Anna... ég er sko bæði með 21 og 28 í minni röð... svo ég doka bara áfram Cool

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Viltu deila?

Innlegg  Anna M nr 165 Sun Jún 22 2008, 15:50

Deilum við þá ekki þeim stóra?? Very Happy Smile
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Sun Jún 22 2008, 17:57

Hmm.. það er spurning Question

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Engan asa, ég er líka með.

Innlegg  Björn H. no. 29 Mán Jún 23 2008, 08:49

Hei,er þetta ekki samráð og varðar við lög.
Ég er í óðaönn að skipuleggja tölurnar og þær verða sko inni í myndinni.
kveðja
Björn H. 29
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Mán Jún 23 2008, 12:52

lol!
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Anna M nr 165 Mán Jún 23 2008, 17:01

Björn H. no. 29 skrifaði:Hei,er þetta ekki samráð og varðar við lög.
Ég er í óðaönn að skipuleggja tölurnar og þær verða sko inni í myndinni.
kveðja
Björn H. 29
Nei ekki samráð, enda verður þú með Very Happy Hva, ekki kominn með tölurnar? Er svona erfitt að telja bílaflotann?? Very Happy
Það verðu gaman að sjá röðina þína Very Happy
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Mínar virkuðu, eða hvað?

Innlegg  Anna M nr 165 Fim Jún 26 2008, 16:04

Keypti muffins á 228kr og kex á 198, skilaði strimli áheftuðum á blaði í sumarleik Ísl-Ameríska og VANN! cheers
Fékk troðfulla gjafakörfu með ORA og FRÓN vörum Very Happy
Svo það er spurning hvort talan mín 28 eða Steina 98 sem virkaði? Very Happy
Allavegana ef það væru báðar lukkutölur hefði ég kannski átt að fá utanlandsferð Smile
Björn minn hvar eru þínar tölur? Enn að telja hehe Very Happy
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Steini 69 Fim Jún 26 2008, 19:00

Sama hvort er.... þetta eru hvort tveggja "mínar tölur" Very Happy
- Til hamingju... manni verður þá kannski boðið uppá "Sæmund í sparifötum" næst þegar við hittumst lol!

Kv. Steini
Steini 69
Steini 69
Admin

Fjöldi innleggja : 622
Age : 66
Hvaðan ertu? : Selfoss
Registration date : 08/03/2008

https://spjall.icelandforum.net

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Mínar virka bráðum

Innlegg  Björn H. no. 29 Fös Jún 27 2008, 01:38

Er farin að halda að það þíði ekki að keppa við ykkur, þegar Anna er nú farinn að vinna allskonar matvöru fyrir utan alla gullpeningana, þá er nú fokið í flest skjól fyrir menn eins og mig.
Held að það eina rétta í stöðinni fyrir mig sé að óska eftir að verða hluthafi hjá ykkur, að vísu ekki mjög spenntur fyrir mikið af kexi en grænu baunirnar mega vera með.
Jú það er annars allt í lagi með Sæmund á spariskónum, hann má verra með.
En slatti af okkar gulltrygga gjaldmiðli, það er málið.
Ef samningar um hlutafélag koma ekki til greina þá held ég áfram að finna réttu tölurnar þar sem ég er sannfærður um að minn tími sé að koma, hefur að vísu gengið hægt fram að þessu.
Kveðja
Björn H. 29
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Hmmhmmm.

Innlegg  Anna M nr 165 Lau Jún 28 2008, 07:35

Mig vantar nú útskýringu á þessum Sæmundi á spariskóm eða fötum Embarassed Embarassed
Ekki málið að ég bjóði upp á hann ef ég veit hver hann er... Embarassed Embarassed
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Þegar Stebbi fór á sjóinn,,,,,,,, spariskónum á.

Innlegg  Björn H. no. 29 Lau Jún 28 2008, 11:49

Ætli ég verði ekki að fara úr spariskónum Sad og í sparifötin, finnst þó að ég hafi lært það með spariskónum.
En munurinn á Sæmundi og Sæmundi á sparifötunum !!!!!!!!
Sæmundur er venjulegt kex. Crying or Very sad
Sæmundur á sparifötunum er kremkex. Laughing
Samkvæmt sögunni mun nafnið vera tengt manni úr kexverksmiðjunni.

Kexverksmiðjan Frón bætir við enn einni nýjung í sitt frábæra vöruval.

Nú kynnir fyrirtækið nýtt Kremkex sem er að mörgu leyti kunnuglegt enda útvíkkun á gamla góða Kremkexinu frá Frón (eða Sæmundur í sparifötunum eins og margir kalla það!). Nýja kremkexið er hreint út sagt frábært með ískaldri mjólk. Kexið hefur ríkjandi súkkulaði/kakó bragð fullkomnað með hinu fræga Frón vanillukremi á milli. Súkkulaðikremkexið frá Frón verður fáanlegt í öllum betri verslunum á næstu dögum.

Hérna er dæmi sem ég fann á netinu þar sem talað er um spariskó.
Ég held að það hafi verið á einhverju bloggi í dag að hér sé um að ræða tvær tegundir af kexi bæði Sæmund og Sæmund á spariskónum. Ja hverju getur maður bætt við þetta öðru en boðið þá velkomna á FRÓN.
Björn H. no. 29
Björn H. no. 29

Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Datt það í hug.

Innlegg  Anna M nr 165 Sun Jún 29 2008, 16:38

Hringdi meira að segja í mömmu og hún stóð á gati, en svo var það stjúpi minn sem gaf það svar að þetta snerist um kremkexið Very Happy Sá hafði greinilega rétt fyrir sér.
Ekki er nú mikið eftir af kremkexinu, það kom einn pakki og ég og dagmömmubörnin héldum veislu Laughing
Anna M nr 165
Anna M nr 165

Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008

Til baka efst á síðu Go down

Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98 Empty Re: Veit ekki hvað það er með þessa tölu 98

Innlegg  Sponsored content


Sponsored content


Til baka efst á síðu Go down

Til baka efst á síðu

- Similar topics

 
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum