Lumið þið á uppskriftum?
+9
Ægir og Sigga
Helga 298
Björn H. no. 29
Steini 69
keilir
Gyða og Jói 591
hafdísjúlía
Ágústa B 696
Anna M nr 165
13 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 4 af 4
Blaðsíða 4 af 4 • 1, 2, 3, 4
Re: Lumið þið á uppskriftum?
--- Anna mín þér er alveg óhætt að prófa þessa Færeysku uppskrift. - smá skýringar--havtaskuflak er skata samkvæmt mínum heimildum, uppá kók- er að láta suðu koma upp, hitt skýrir sig sjálft. Nú þetta síðasta- það er meiri dónaskapur að prumpa en að ropa, það lyktar jú oftast verr, en lyktandi ropi er þó ekki alltaf góður. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,Anna M nr 165 skrifaði:Ekki legg ég í þessa færeysku nema þá fá túlk með mér, svo er maður ekki alveg að treysta brandarakarli eins og þér Ægir
Mér finnst nú einhver lykt vera af þessu prumpi og ropi....
En ég gerði eitt sniðugt, tók ost, setti í sneiðina Mangsósuna sem er til uppskrift hér að ofan, setti svo fín saxaða gula papriku og grillaða bleikju, rúllaði ostinum saman og stakk tannstöngli í gegn.
Þetta var hinn besti forréttur meðan steikin var grilluð um helgina.
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Lumið þið á uppskriftum?
Held ég prófi bara einhverntímann. Verst að ekki sé hægt að veiða skötuna á stöng
Það er svo margt hægt að gera með allskonar fiski.
Ropinn þykir sumstaðar bara sýna ánægju fólks með matinn og að fólk sé satt
Það er svo margt hægt að gera með allskonar fiski.
Ropinn þykir sumstaðar bara sýna ánægju fólks með matinn og að fólk sé satt
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Lumið þið á uppskriftum?
Ótrúlega góð kjúklingasúpa
8 kjúklingabringur
1 msk karrý
1 stk púrrulaukur (ekki mjög sver - saxað smátt)
4 paprikur (allir litir- saxað smátt)
1 hvítlaukur (saxað smátt)
1-2 rjómaostur (blá box)
1 líter vatn
2 súputeningar
2,5 dl rjómi
1 dós tómatpuré
salt og pipar eftir smekk
1. Vatn,teningar, chillisósa og tómatpuré sett í pott, kveikt undir.
2. Púrrulaukur, paprikur, hvítlaukur og karrý látið svitna á pönnu.
3. Grænmeti sett út í vökvann.
4. Látið sjóða í 20-30 mín.
5. Bringur skornar í litla bita og steikt á pönnu (ekki fullsteikja)
6. Sett út í súpuna og látið malla í 15 mín.
7. Rjómaostur hrærður út í og látinn bráðna saman við. Látið malla í smá stund. (Setjið fyrst 1 box og smakkið, síðan bætt við eftir smekk)
8. Takið svo pott af hellu og hellið rjóma út í og hrærið saman við.
9. Borið fram með góðu brauði

Oddný og Nonni- Fjöldi innleggja : 67
Registration date : 17/03/2009
Re: Lumið þið á uppskriftum?
Gott að "uppa" þessa umræðu Takk Oddný fyrir góða uppskrift, ætla að prófa þessa.
Þið sem fenguð uppskriftarbókina, endilega leggið okkur lið með fleiri uppskriftir í vetur Planið er að prenta allar uppskriftir og bæta í möppuna í vor þegar við hittumst á ferðinni.
Allir þeir sem leggja inn uppskrift fá eintak af "uppskriftasafni Spjallverja"
Þið sem fenguð uppskriftarbókina, endilega leggið okkur lið með fleiri uppskriftir í vetur Planið er að prenta allar uppskriftir og bæta í möppuna í vor þegar við hittumst á ferðinni.
Allir þeir sem leggja inn uppskrift fá eintak af "uppskriftasafni Spjallverja"
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Mjög góð og kraftmikil súpa.
Tómatsúpa með kjúklingabaunum og spínati
1 laukur
1 rauð paprika
2 msk ólífuolía
1 ½ tsk kummin(cumin)
1 dós (250ml) tómatmauk (purée)
1 kjúklingateningur
700 ml sjóðandi vatn
1 dós kjúklingabaunir
1 msk rauðvínsedik
2 tsk sykur
salt
væn hnefafylli af spínati
saxið laukinn fremur smátt. Fræhreinsið paprikuna og skerið hana í teninga. Hitið olíuna í þykkbotna potti og látið lauk, hvítlauk og papriku krauma við meðalhita í um 5 mín. Hrærið kumminu saman við og síðan tómatmaukinu. Myljið kjúklingateninginn út í vatnið og bætið því í pottinn. Setjið kjúklingabaunirnar út í ásamt ediki, sykri, pipar og salti. Látið malla í 6-8 mín. Smakkið og bragðbætið eftir smekk – þessi súpa á að vera vel pipruð. Bætið að síðustu spínati út í, 1-2 mín áður en súpan er borin fram.
Ég geri þetta pínu öðruvísi. Skræli og sker í teninga nokkrar kartöflur og sýð þær svo með kjúklingatening og nota svo allt kartöfluvatnið ásamt kartöflunum í súpuna í staðinn fyrir soðið vatn. Svo set ég stundum líka dós af niðursoðnum söxuðum tómötum. Nota líka oft ferskar kryddjurtir eins og steinselju eða basiliku.

Vigdís 677- Fjöldi innleggja : 18
Registration date : 09/03/2008
Re: Lumið þið á uppskriftum?
Ótrúlega gott og auðbakað rúgbrauð
6 bollar rúgmjöl
3 bollar heilhveiti
4½ tsk natrón
2-3 tsk salt
2 bollar síróp
1½ líter súrmjólk
Þurrefnum fyrst blandað saman, síðan sírópi og súrmjólk hrært saman við. Síðan sett í svartan ofnpott með loki ( stóran ) Sett í 200° heitan ofn og bakað í 10-15 mínútur, svo lækkað í 100-110° Bakað í 7 klukkutíma.
Brauðinu velti úr pottinum og látið kólna á grind.
Borið fram með t.d. heimalagaðri kindakæfu eða rúllupylsu
6 bollar rúgmjöl
3 bollar heilhveiti
4½ tsk natrón
2-3 tsk salt
2 bollar síróp
1½ líter súrmjólk
Þurrefnum fyrst blandað saman, síðan sírópi og súrmjólk hrært saman við. Síðan sett í svartan ofnpott með loki ( stóran ) Sett í 200° heitan ofn og bakað í 10-15 mínútur, svo lækkað í 100-110° Bakað í 7 klukkutíma.
Brauðinu velti úr pottinum og látið kólna á grind.
Borið fram með t.d. heimalagaðri kindakæfu eða rúllupylsu
Oddný og Nonni- Fjöldi innleggja : 67
Registration date : 17/03/2009
Re: Lumið þið á uppskriftum?
Takk fyrir uppskriftirnar stelpur.
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Blaðsíða 4 af 4 • 1, 2, 3, 4
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 4 af 4
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum