Heimasíðan og margir félagar
5 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Heimasíðan og margir félagar
Heil og sæl. Nú erum við alveg ný í þessu félagi. Eftir því sem ég kem oftar inn á heimasíðuna þá verður hún auðveldari að umgangast. Þegar félagsmenn eru búnir að logga sig inn vildi ég gjarnan geta séð félagatal. Upplýsingar um félaga, númer og hvar þeri búa sem dæmi. Á myndunum sem ég hef verið að skoða þá virðist þessi félagsskapur vera mjög fjölmennur, s.b. myndir úr ferðalögum, skemmtunum og aðalfundum. Það er til svo mikið af skemmtilegum pennum sem ættu að leggja til efni á síðuna. Bestu kveðjur, Daði Þór nr. 39 (Kremi)
Elín og Daði nr. 39- Fjöldi innleggja : 58
Age : 66
Hvaðan ertu? : Mosfellsbæ
Registration date : 15/03/2009
Re: Heimasíðan og margir félagar
Þegar ég verð kominn með nýju síðuna upp verður þessi möguleiki til staðar þ.e þeir sem logga sig inn(félagsmenn) geta þá komið til með að skoða félagatalið.
Þetta er allt í vinnslu:-)
Kv. Steini
Þetta er allt í vinnslu:-)
Kv. Steini
Re: Heimasíðan og margir félagar
Þar kom að því, félagatlið verður á heimasíðunni eins og hjá hinum félögunum, húrra fyrir því.
Þetta er fjölmennt félag og örugglega fullt af fólki sem lumar á skemmtilegum ferðasögum, bæði af ferðum hér heima og síðan af ferðalögum erlendis.
Steini, við bíðum spennt, verður ekki hægt að hafa félagatalið með mynd eins og á spjallinu?
Þetta er fjölmennt félag og örugglega fullt af fólki sem lumar á skemmtilegum ferðasögum, bæði af ferðum hér heima og síðan af ferðalögum erlendis.
Steini, við bíðum spennt, verður ekki hægt að hafa félagatalið með mynd eins og á spjallinu?
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Heimasíðan og margir félagar
Góðan daginn Björn! Jú það verður hægt þ.e þegar þessir kallar klára forritunina á þessu... ef einhverntímann:-) Og siðan er þá eftir þrautin þyngst sem verður að færa þetta allt til bókar. Þannig að þetta er svosem ekkert að detta inn fullbúið næstu vikurnar. En kemur allt með kalda vatninu.
Kv. Steini
Kv. Steini
Re: Heimasíðan og margir félagar
Steini minn þú ert alveg snillingur í þessu heimasíðudóti, en þú þarft nú ekki að vakna alveg svona snemma til þess að halda utan um hana
hafdísjúlía- Fjöldi innleggja : 212
Age : 67
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008
Re: Heimasíðan og margir félagar
:-) Takk takk... get nú ekki sagt með sanni að vefsíðan hafi dregið mig á lappir... sá glæpur verður að skrifast á strákinn
Re: Heimasíðan og margir félagar
ÆÆ varla þarf að kirkja hann svona snemma dags er það ekki allt saman yfirstaðið framm að fermingunni sjálfri, eru það 10 skipti núna þetta árið
hafdísjúlía- Fjöldi innleggja : 212
Age : 67
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 10/03/2008
Re: Heimasíðan og margir félagar
Steini, góðir hlutir gerast hægt, ég get alveg beðið á meðan þú og þitt fólk sinnið kirkjulegum málefnum.
Heldurðu að við hefðum það af að stauta okkur í gegnum trúarjátninguna.
Það er svo langt síðan ég þurfti að standa í svona löguðu, núna eru það barnabörnin og þá lætur maður sér líða í brjóst á meðan presturinn sinnir sinni vinnu.
Heldurðu að við hefðum það af að stauta okkur í gegnum trúarjátninguna.
Það er svo langt síðan ég þurfti að standa í svona löguðu, núna eru það barnabörnin og þá lætur maður sér líða í brjóst á meðan presturinn sinnir sinni vinnu.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Heimasíðan og margir félagar
Sko fermingarundirbúningur er ekki að tefja mig.. og verður ekki. Já krakkarnir þurfa að fara 10 x í messur fyrir ferminguna og það í fylgd fullorðins
En hvað forritunina á síðunni varðar... þá vantar ennþá lausnir og kerfiseiningar frá þeim í Stefnu.
En hvað forritunina á síðunni varðar... þá vantar ennþá lausnir og kerfiseiningar frá þeim í Stefnu.
Re: Heimasíðan og margir félagar
Sko að Steini minn vaknaði svona snemma, skrifast á mig því ég sagði drengunum að vekja pabba sinn en ekki mig sem og hann gerði, svo Steini leitaði af Gull í mund í allan morgun en fann ekkert
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum