Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
3 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Pússlið vafðist ekkert fyrir mér en myndagetraunin, hef ekki Guðmund eins og ein sagði. Björn þú verður bara að gefa okkur smá vísbendingu, er þessi mynd kannski tekin þarna á Nesinu ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Áttin er rétt, fjöllin þekkt, já þarna hefur ýmislegt skeð segir sagan.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Ægir, ertu alveg lens enn?
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Já,, búinn að skoða albúmin en ég næ þessu ekki ennþá ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Á góðum degi sést til fjallsins úr Borgarnesi, leitaðu í þjóðsögunum.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Nú held ég að ég sé með svarið, eru þetta ekki Botnsúlur ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Ekki rétt, hið gullfallega Hafnarfjall byrgir okkur sýn til austurs, horfðu í vestur.
Það hlýtur að fara að kveikna á perunni hjá þér.
Það hlýtur að fara að kveikna á perunni hjá þér.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Ein tilraun enn eða tvær. Það eru sennilega fjögur eða fimm ár síðan við fórum yfir hjá Snæfellsjökli slóða 570 það er Jökulháls og til Ólafsvíkur . Þá var búið að flytja Þjónustumiðstöðina uppi við jökul , fór nefnilega gamla veginn og lenti í vandræðum við að snúa bílnum til baka, vegurinn endaði allt í einu það hafði sennilega runnið úr veginum og mjór vegur, þá var gott að vera á Bens. Er þetta kannski fjallið, eða eru þetta Ljósufjöll . Heyrðu ertu ekki að grínast ,þetta með Hafnarfjall ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Ægir, ertu búin að senda inn svar?
Bens kemst alveg yfir jökulhálsinn, það gerði Ford líka, hann seldum við á þitt svæði.
SP 116 silvur litaður með háan topp, bið að heilsa honum ef þú rekst á gripinn.
Hafnarfjall, Heiðarhorn,Skessuhorn og Baula eru öll heimsfræg um allan Borgarfjörð og svo eru önnur minni og því ekki heimsfræg, er eitthvað af fjöllum þarna fyrir austan?
Núna er fallegt veður í Borgarnesi, svolítið frost og smá gola.
Bens kemst alveg yfir jökulhálsinn, það gerði Ford líka, hann seldum við á þitt svæði.
SP 116 silvur litaður með háan topp, bið að heilsa honum ef þú rekst á gripinn.
Hafnarfjall, Heiðarhorn,Skessuhorn og Baula eru öll heimsfræg um allan Borgarfjörð og svo eru önnur minni og því ekki heimsfræg, er eitthvað af fjöllum þarna fyrir austan?
Núna er fallegt veður í Borgarnesi, svolítið frost og smá gola.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Nei , ég hef ekki sent inn svar, veit ekki svarið . Já þau eru "fjarska" falleg "fjöllin" Í Borgarfirðinum það verður ekki af þeim tekið . Hér er alhvít jörð en ekki mikill snjór ,logn og blíða eins og er. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Hvað hét hundur karls, veit ekki svarið en veit það samt.
Getraunin verður að hafa sinn gang, við fáum vonandi að sjá rétta svarið fljótlega.
Hitt var öllu verra Ægir minn að þú fórst að taka undir grobbið í Borgfirðinginum , ég var að vonast eftir góðri upptalningu á fallegum fjöllum fyrir austan, það er sagt að þau séu mörg en þú nefndir ekki eitt einasta.
Hér er ekki alhvít jörð svolítill grátt yfir en annars allt í lagi.
Getraunin verður að hafa sinn gang, við fáum vonandi að sjá rétta svarið fljótlega.
Hitt var öllu verra Ægir minn að þú fórst að taka undir grobbið í Borgfirðinginum , ég var að vonast eftir góðri upptalningu á fallegum fjöllum fyrir austan, það er sagt að þau séu mörg en þú nefndir ekki eitt einasta.
Hér er ekki alhvít jörð svolítill grátt yfir en annars allt í lagi.
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Nei heyrðu félagi þú hefur misskilið þetta með fjöllin þarna í Borgó . Þetta máltæki að vera " fjarska fallegt" segir að þegar horft er úr fjarska á eitthvað þá geti það litið vel út, en þegar komið er nálægt þá sé lítið útí það varið, smá stríðni. Þau eru svo mörg fjöllin hér að það yrði að æra óstöðugan að telja þau öll upp ha haha ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla, þarna tókstu mig í bólinu.
Vissi ekki að þið þekktuð orðið fjarlægð, en það er auðséð á skrifum þínum að þú hefur ferðast til annarra landshluta.
Þið hafið orðið að sætta ykkur við nálægðina við fjöllin, það vantar undirlendið, meiri stríðni.
Hérna getum við bæði horft á fjöllin í fjarska og líka nálgast þau ef vill.
Borgnesingar stunda það til dæmis að ganga á Hafnarfjall og horfa yfir mýrarnar, væntanlega til að kanna gróðurfar eftir Mýrareldana hina síðustu. reyndar svolítið skrítið að þarna hafi orðið frægir eldar, þetta svæði er eins og Arnarvatnsheiðin, vötnin eru óteljandi.
Ertu búin að skoða fossinn hjá Flökkurum, ekki kannast ég við hann svona við fyrstu skoðun.
Fossinn er væntanlega nálægt vegi og er þetta ekki jökulvatn sem við sjáum?
Vissi ekki að þið þekktuð orðið fjarlægð, en það er auðséð á skrifum þínum að þú hefur ferðast til annarra landshluta.
Þið hafið orðið að sætta ykkur við nálægðina við fjöllin, það vantar undirlendið, meiri stríðni.
Hérna getum við bæði horft á fjöllin í fjarska og líka nálgast þau ef vill.
Borgnesingar stunda það til dæmis að ganga á Hafnarfjall og horfa yfir mýrarnar, væntanlega til að kanna gróðurfar eftir Mýrareldana hina síðustu. reyndar svolítið skrítið að þarna hafi orðið frægir eldar, þetta svæði er eins og Arnarvatnsheiðin, vötnin eru óteljandi.
Ertu búin að skoða fossinn hjá Flökkurum, ekki kannast ég við hann svona við fyrstu skoðun.
Fossinn er væntanlega nálægt vegi og er þetta ekki jökulvatn sem við sjáum?
Björn H. no. 29- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Borgarnes
Registration date : 09/03/2008
Re: Myndagetraun 9 og pússlið !!!!!
Já var að kíkja á fossinn í getraun Flakkara, þessi foss er núna undir Hálslóni og heitir Kringilsárfoss eða hét, var einnig kallaður Töfrafoss. Hann var við Kringilsárrana. Það var núdálítið labb að þessum fossi. Jú þetta var jökulá . Fórum þarna um og yfir Kringilsá í kláfferju yfir í Kringilsárrana stuttu áður en Hálslón færði þetta í kaf.. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Síðast breytt af Ægir og Sigga þann Fim Mar 12 2009, 13:37, breytt 1 sinni samtals
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Ljósufjöll!
Ja, hver röndóttur! Ekki átti ég von á að þetta blindskot reyndist rétt. Mér fannst þetta geta passað en hafði ekkert fast í hendi. Svona er þetta, svei mér þá....
Um fossinn í getraun 10 hef ég ekki grænan grun utan hvað mér dettur í hug að hann sé á þeim hluta landsins sem ég á að mestu eftir að kanna.
Um fossinn í getraun 10 hef ég ekki grænan grun utan hvað mér dettur í hug að hann sé á þeim hluta landsins sem ég á að mestu eftir að kanna.
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum