Góðar sögur
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Góðar sögur
Hvað er fátækt?
Ég má til með að senda ykkur þessa fallegu sögu, faðirinn og sonurinn litu ekki sömu augum á hver var fátækur......
Dag nokkurn tók mjög efnaður maður son sinn með sér í ferð út á land í þeim
tilgangi að sýna honum hvernig fátækt fólk býr. Þeir dvöldu í tvo daga og
tvær nætur á sveitabýli sem myndi teljast fátæklegt.
Á heimleiðinni spurði faðirinn son sinn hvernig honum hafi þótt ferðin.
,,Hún var frábær, pabbi,? sagði drengurinn glaður í bragði.
,,Sástu hvernig fátækt fólk býr?" spurði faðirinn.
,,Ó já," sagði sonurinn. ,,Það fór ekki á milli mála.?
,,Jæja, segðu mér þá; hvað lærðir þú af þessari ferð?" spurði faðirinn.
,,Ég sá að við eigum bara einn hund en þau eiga fjóra,? sagði sonurinn.
,,Við eigum sundlaug sem nær út í miðjan garð en þau eiga læk sem engan
enda tekur. Við erum með innflutt ljósker í garðinum en þau hafa milljón
stjörnur sem lýsa þeim veginn á næturnar. Veröndin okkar nær alveg að
framgarðinum en þau hafa allan sjóndeildarhringinn. Við eigum smá blett til
að búa á en þau eiga akra sem ná eins langt og augað eygir. Við höfum
þjónustufólk sem þjónar okkur en þau þjóna öðrum. Við þurfum að kaupa okkar
mat en þau rækta sinn. Við erum með háa girðingu til að verja okkur en þau
eru umkringd vinum
sem verja þau.?
Faðir drengsins var orðlaus.
Þá bætti sonurinn við: ,,Takk pabbi, fyrir að sýna mér hve fátæk VIÐ erum.?
Kv.Soffía Keili

keilir- Fjöldi innleggja : 133
Registration date : 11/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum