Það er staðreynd.
5 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Það er staðreynd.
Ég bara get ekki gert lummurnar eins og hún amma mín blessunin gerði þær
Búin að reyna nokkrum sinnum og mínar lummur líta út eins og skonsur, en þegar ég var að reyna að rifja upp lummurnar hennar ömmu sem enginn veit uppskriftina af, þá upprifjaðist ástæðan fyrir því að ég reyni þetta ekki lengur Hún amma gamla nýtti það sem var til hverju sinni og uppskriftin breytileg, en einu sinni upplifði ég að sjá hana gera deigið og ætlaði varla að geta borðað þær eftir það
Hún tók gallsúra mjólk eða súrmjólk, notaði afgangsgrauta allskonar, og örugglega feiti eða tólg, því hennar lummur voru alltaf voða djúsí, og guð má vita hvað fleira var sett í þær
Á einhver hér uppskrift af gamaldagslummum?

Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Það er staðreynd.
Ég er löngu hætt að reyna að gera eins og mamma gerði það reyni að gera mitt besta, bróðir minn segir stundum við mig að þetta sé næstum eins og hjá mömmu og þá er tilgangnum náð
Siggi og Björk 240- Fjöldi innleggja : 105
Hvaðan ertu? : Selfossi
Registration date : 29/03/2008
Re: Það er staðreynd.
Í rauninni var tilganginum náð því bónda mínum fannst þær vera eins og mamma hans gerði
Bara ég var ekki sátt
Bara ég var ekki sátt
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Það er staðreynd.
Lummur eru gerðar bara úr því sem hendi er næst, best að nota grjónagrautaafganga og/eða hafgraut, svo nóg af feiti og eggjum, og matarsóda með lyftiduftinu og svo slatta af hveiti. Þetta er lummu uppskriftin mín og hún tekst alltaf.. ég hef ekki við að baka þetta ofan í mannskapinn þegar ég baka þær
Re: Það er staðreynd.
Ég notaði einmitt hafragrautsafgang og setti rúsínur, en samt urðu þær svona skonsulegar
Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Re: Það er staðreynd.
Anna M nr 165 skrifaði:Ég notaði einmitt hafragrautsafgang og setti rúsínur, en samt urðu þær svona skonsulegar
Halló, ekki kann ég neina uppskrift af lummum eins og þær voru kallaðar í mínu ungdæmi, man bara að mamma mín heitin setti oft rúsínur í hluta af lummunum sem hún bakaði. Það voru nefnilega ekki allir sem vildu rúsínur ég valdi þær nú sjálfur svo lengi sem þær entust. Þeim sem sóttu árshátíðina um helgina og þótti maturinn ekki góður ættu nú að biðja frúna að baka lummur með kvöldkaffinu svona tilbreyting eða þannig, grín veit bara að konan mín bakar góðar lummur, svona eins og mamma. ,,,,mér datt þetta svona í hug,,,,
Ægir og Sigga- Fjöldi innleggja : 737
Hvaðan ertu? : Fáskrúðsfirði
Registration date : 15/04/2008
Re: Það er staðreynd.
Hafiði pælt í því hvað manni finnst alltaf mest varið í "gamla" bakkelsið... þ.e kleinur, ástarpunga, lummur, pönnukökur, vöfflur, soðiðbrauð, flatbrauð og slíkt. Tek slíkt ávalt fram fyrir tertur og slíkt...(brauðtertur undanskildar )
Reyndar bakaði ég einu sinni vöfflur en Helgu fannst uppskriftin ekki alveg normal.. enda jafn mikið af sykri og hveiti í þeirri uppskriftinni.... Það þurfti sko enga helvítis sultu með þeim vöfflunum
Reyndar bakaði ég einu sinni vöfflur en Helgu fannst uppskriftin ekki alveg normal.. enda jafn mikið af sykri og hveiti í þeirri uppskriftinni.... Það þurfti sko enga helvítis sultu með þeim vöfflunum
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum