Erum komin heim!
2 posters
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Erum komin heim!
Heil og sæl öll sömul.
Þá erum við komin heim eftir 5 vikna útilegu. Ekki laust við að maður hafi saknað tölvunnar til að fylgjast með ykkur hinum.
Af okkur er allt gott , bara aum yfir því að þurfa að fara að vinna eftir helgi
Við höfum reyndar ekki verið bílandi þennan tíma því að við höfum líka ættaróðal til að dvelja í og vorum þar í 3 vikur í góðu veðri og rólegheitum. Reyndar var svolítið freistandi að fara á flakk þessa síðustu daga en...alltaf gott að eiga frídaga heima fyrir áður en alvaran byrjar. Ekki satt?
Mættum helling af bílum á norðurleið í dag og margir sjálfsagt að fara á Fiskidaga.
Svo að endingu viljum við þakka fyrir frábæra Stóru ferð!! Okkur finnast þessar ferðir langbestar af öllum góðum til að kynnast öðrum. Ég ætlaði að vera rosadugleg að mynda allt og ekkert í ferðinni en ég aulinn flaug á hausinn á bryggjunni á Vopnafirði og eyðilagði myndavélin svo myndirnar urðu nú ekki margar. Bless íbili..

Ágústa B 696- Fjöldi innleggja : 430
Hvaðan ertu? : Reykjavík
Registration date : 09/03/2008
Fipaðist á stórufsunum.
Tek undir með Gústu stóra ferðin var frábær Komum inn í hana á Húsavík. Alltaf gaman að ferðast og hitta fólk. Lokahófið glæsilegt og var virkilega gaman á Vopnafirði. Fórum niður á bryggju og þar var fjör Fjörðurinn fullur af fiski og drógum við þorsk, ýsu og stóra ufsa, varð svo Gústu um stærðina að hún féll við Ekki var ég með myndavél svo þið verðið bara að trúa okkur með stærðina, þvílíkir boltar!
Okkar bíll er vel nýttur, enda næturnar orðnar ansi margar síðan í vor, búin að vera á ferðinni meira og minna síðan í byrjun júlí. Núna styttist í vinnu hjá mér en bóndinn byrjaður Förum allar helgar samt.

Anna M nr 165- Fjöldi innleggja : 1005
Age : 62
Hvaðan ertu? : RVK
Registration date : 10/03/2008
Spjall :: Húsbílar :: Almenn umræða
Blaðsíða 1 af 1
Permissions in this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum